Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

893 þúsund gestir í ágúst

Við tókum á móti 893.214 gestum á Keflavíkurflugvöll (KEF) í ágúst 2026.

Ág­úst 2026

Í ágúst 2026 fóru 893.214 farþegar um Keflavíkurflugvöll (KEF), sem er 9,9% fækkun frá sama mánuði í fyrra.

Alls flugu 26 flugfélög beint frá Keflavíkurflugvelli til 74 áfangastaða í ágúst. Vinsælustu áfangastaðirnir í mánuðinum voru Kaupmannahöfn, New York og London.

Mest var um að vera á Keflavíkurflugvelli 2. ágúst, þegar 31.662 farþegar fóru um flugvöllinn.

Brott­far­ir er­lendra ferða­manna

Brottfarir erlendra ferðamanna frá Keflavíkurflugvelli voru um 314 þúsund í ágúst. Samkvæmt tölum Ferðamálastofu voru brottfarir erlendra ferðamanna svipað margar og í sama mánuði í fyrra.

Brottfarir Íslendinga voru tæplega 52 þúsund í ágúst, sem er 10% færri brottfarir en í sama mánuði í fyrra.

Bandaríkjamenn voru fjölmennasti hópur erlendra farþega sem fór frá Íslandi í ágúst. Um 107 þúsund Bandaríkjamenn fóru frá landinu í mánuðinum, eða 33,9% allra brottfara erlendra farþega. Brottfarir Bandaríkjamanna voru 27,2% fleiri en í ágúst í fyrra.

Kanadamenn voru næstfjölmennastir, um 23 þúsund talsins, eða 7,3% af heildarfjölda brottfara erlendra farþega. Það er 54,5% aukning frá sama mánuði í fyrra.

Þjóðverjar voru þriðja fjölmennasta þjóðernið, með um 22 þúsund brottfarir, eða 7,1% af heildinni. Það er 5,7% fækkun frá fyrra ári.

Fyrstu átta mán­uð­ir árs­ins

Þegar litið er á fyrstu átta mánuði ársins hafa um 1,56 milljónir erlendra farþega farið frá Íslandi. Það er svipaður fjöldi og á sama tímabili í fyrra, en brottförum erlendra farþega hefur fækkað um 1,0%.

Á sama tímabili hafa Íslendingar farið í um 435 þúsund ferðir utan. Það er 10,4% færri ferðir en á sama tímabili í fyrra.