Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

790 þúsund gestir í júní

Við tókum á móti 790.007 gestum á Keflavíkurflugvöll (KEF) í júní 2026.

Júní 2026

Í júní 2026 fóru 790.007 gestir um Keflavíkurflugvöll (KEF), sem er 7,4% færri gestir en á sama tíma í fyrra.

Alls flugu 25 flugfélög til 72 áfangastaða. Vinsælustu áfangastaðirnir voru Kaupmannahöfn, London, New York, París og Osló. Mest var að gera 28.júní, þegar 30.837 farþegar lögðu leið sína um KEF.

Brottfarir erlendra gesta frá KEF voru um 223 þúsund í nýliðnum júní. Samkvæmt tölum Ferðamálastofu
eru það 4.5% færri brottfarir en í sama mánuði 2025.


Um 78.000 Bandaríkjamenn fóru úr landi í júní, sem samsvarar rúmlega þriðjungi allra brottfara. Þetta er um 20% fækkun miðað við sama mánuð 2025. Frá áramótum og út júní fóru 957 þúsund erlendir ferðamenn frá Íslandi. Það er nær óbreyttur fjöldi miðað við sama tímabil í fyrra, en fækkunin nemur 0,9%.
Brottfarir Íslendinga voru um 316 þúsund það sem af er af þessu ári, sem er 12,7% fækkun miðað við sama tímabil í fyrra.