Hvar er hægt að fá sér gott kaffi á Keflavíkurflugvelli?

Á ferðaflakki er gott kaffi allra meina bót og fyrir suma er þetta meira en bara drykkur – þetta er lífsstíll! Lífið er hreinlega of stutt fyrir vont kaffi og því höfum við tekið saman lista yfir hvar er hægt að fá sér gott kaffi í flugstöðinni.
Áður en farið er inn á völl
Fyrir alla, hvort sem þú ert að bíða, skutla, sækja eða jafnvel á leiðinni í flug
Bakað
Á Bakað má fá rjúkandi heitt gæðakaffi frá Te & kaffi sem og árstíðartengda kaffidrykki sem er hægt að drekka á staðnum eða taka með. Staðsett í innritunarsal við rúllustigann á leiðinni upp í öryggisleit.

10-11
Ef þú ert með löngun í einfaldan og strangheiðarlegan kaffibolla er 10-11 með hið fínasta kaffi úr vél. Staðsett í komusal.
Inni á velli
Nú er tími til að njóta - fríið þitt hefst hjá okkur
Elda
Á Elda færðu dýrindis bolla frá Kaffitár sem er hægt að drekka á staðnum og fá sér gómsætar kræsingar með bollanum. Nú og fyrir þá sem eru á hraðferð er að sjálfsögðu hægt að fá kaffi í ferðamál og taka með. Í brottfararsal beint á móti Fríhöfninni og Eyesland.
.png&w=3840&q=80)
Penninn
Heiðarlegt og gott kaffi úr vél, ásamt góðu lesefni hjá Pennanum og snarli fyrir flugferðina. Í brottfararsal við hliðina á Elda.
.png&w=3840&q=80)
Jómfrúin
Svei mér þá ef þú átt ekki skilið eins og einn kaffi og sætabrauð fyrir flug. Og það er einmitt í boði á Jómfrúnni enda fullkominn staður til að njóta með fyrir ferðalagið. Bragðgott kaffi frá Kaffitár. Í brottfararsal.

Bakað
Hvort sem þú ert á hraðferð eða ekki, þá áttu skilið gott kaffi. Á Bakað færðu bragðgott kaffi frá Te & Kaffi ásamt gómsætu bakkelsi og ljúffengum kræsingum. Veldu góða kaffið á Bakað og ýmsa árstíðartengda kaffidrykki. Í brottfararsal.

La Trattoria
Gott kaffi er gulli betra og það vita kaffigerðarmeistararnir á La Trattoria. Ítölsk gæði og morgunhressing af betri gerðinni. Í brottfararsal á veitingasvæðinu Aðalstræti.

Point – fljótlegt og ferskt
Gríptu með þér gott kaffi úr vél og snarl með fyrir flugið. Við Aðalstræti veitingasvæði í brottfararsal.
Bæjarins beztu
Þetta þarf ekki að vera flókið. Heiðarlegur kaffibolli úr vél. Parað með einni pylsu hjá Bæjarins beztu. Og þá má fríið hefjast. Milli B og C-hliða.
.png&w=3840&q=80)
Hjá Höllu
Það er alltaf heitt á könnunni Hjá Höllu og nóg til af sætu með bollanum. Kíktu í kaffi og njóttu fyrir flug við C-hliðin.

Loksins Café & Bar
Hvernig hljómar eins og einn dúndur kaffibolli ásamt handgerðu bakkelsi? Fullkomin hressing fyrir flugtak á Loksins Café & Bar. Og fyrir þau sem vilja svo aðeins sterkara út í kaffið sitt þá er boðið upp á dýrindis Espresso Martini. Við C-hliðin.

Á D svæðinu
Úrvalið býður þín á fyrstu hæð
Keflavík Diner
Gríptu með þér heitan bolla af Costa kaffi á Keflavík Diner. Góð morgunverðartilboð í boði þar sem er hægt að para kaffið með samloku og bakkesli. Á fyrstu hæð á D svæðinu.
.png&w=3840&q=80)
Point – fljótlegt og ferskt
Góður bolli úr vél frá Kaffitár og nóg úrval af snarli og samlokum. Á fyrstu hæð á D svæðinu.
Bæjarins beztu
Rjúkandi heitt kaffi úr vél sem er fullkomið til að grípa með sér í næsta flug. Og ekki verra að fá sér eina pylsu með á Bæjarins beztu. Strangheiðarlegt og gott, alveg eins og við viljum hafa það. Á fyrstu hæð á D svæðinu.
