Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Keflavíkurflugvöllur á HönnunarMars

Í fyrsta skipti tók Keflavíkurflugvöllur þátt í HönnunarMars með sýningunni „Nýjar tengingar hasla sér völl“, þar sem kastljósinu var beint að mikilvægi nýsköpunar og samstarfs í þróun framtíðarlausna.

Já­kvæð áhrif hönn­unar

Markmið þátttökunnar var að opna glugga inn í þá vinnu sem fram fer á flugvellinum og sýna hvernig hönnun getur haft jákvæð áhrif á upplifun farþega, starfsfólks og samstarfsaðila. Fyrir Keflavíkurflugvöll snýst þátttaka í HönnunarMars ekki aðeins um að kynna uppbyggingarverkefni, heldur einnig um að styrkja tengsl við samfélagið með samtali og skapa nýjar tengingar milli ólíkra greina.

Við trúum því að góð hönnun og skapandi hugsun skipti miklu máli í þróun flugvallarins til framtíðar. HönnunarMars er frábært tækifæri til að deila þeirri sýn og læra um leið af öðrum

Brynjar VatnsdalForstöðumaður flugvallarþróunar á Keflavíkurflugvelli

Vel heppn­uð sýn­ing

Sýningin var opin dagana 7.–10. maí og mætti fjöldi gesta til að kynna sér verkefnin framundan, ræða hugmyndir og upplifa hvernig nýjar tengingar geta orðið drifkraftur jákvæðra breytinga.

Sem hluti af dagskránni var einnig haldin fjölskyldusmiðjan „Draumaflugvöllur“ í samstarfi við Þykjó, þar sem börn og fullorðnir fengu að láta hugmyndaflugið ráða för og skapa umhverfi fyrir sinn eigin framtíðarflugvöll. Fjölskyldusmiðjan naut mikilla vinsælda og skapaði skemmtilega samveru.

Keflavíkurflugvöllur þakkar öllum sem heimsóttu sýninguna fyrir komuna, áhugann og góðar umræður.

Nánar um sýninguna

Fjölskyldusmiðja – Draumaflugvöllur