Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

KEF og airBaltic í 10 ár

Um þessar mundir fagna Keflavíkurflugvöllur og lettneska flugfélagið airBaltic tíu ára samstarfsafmæli.

Flugfélagið hóf reglubundið flug á milli Ríga-flugvallar (RIX), heimaflugvallar síns í Lettlandi og KEF í maí 2016.  Fram til ársins 2021 var flugleiðin aðeins í boði yfir sumartímann en síðan þá hefur verið flogið þrisvar sinnum í viku á veturna og fjórum sinnum í viku á sumrin. Á þessum áratug hefur airBaltic flogið um tvö þúsund flugferðir á milli KEF og RIX með yfir tvö hundruð þúsund farþega.

Samstarfið við airBaltic hefur skapað mikilvæga flugtengingu á milli Íslands og Eystrasaltsríkjanna sem hefur verið vel nýtt undanfarinn áratug.

Grétar Már GarðarssonForstöðumaður flugfélaga og markaðsmála á Keflavíkurflugvelli

airBaltic er stærsta flugfélag Eystrasaltsríkjanna og rekur einn yngsta flugvélaflota Evrópu, sem byggir á Airbus A220-300 flugvélum. Félagið býður viðskiptavinum upp á þægilega og sveigjanlega ferðamöguleika og tengir Eystrasaltsríkin við 80 áfangastaði í Evrópu og víðar.

„Síðastliðinn áratug hefur flugleiðin milli Keflavíkurflugvallar og Ríga gegnt mikilvægu hlutverki við að styrkja tengsl Íslands og Lettlands og gefið ferðalöngum frá Íslandi tækifæri til að heimsækja eina stærstu borg Norður-Evrópu, ásamt því að kynnast ríkulegri menningu og fallegri náttúru Lettlands. Flugleiðin hefur einnig verið mikilvæg gátt að Eystrasaltsríkjunum, Finnlandi og Evrópu allri í gegnum umfangsmikið leiðakerfi airBaltic,“ segir Mantas Vrubliauskas, framkvæmdastjóri leiðakerfis hjá airBaltic.“

Við viljum tjá þakklæti okkar til langtímasamstarfsaðila okkar, Keflavíkurflugvallar og Ríga-flugvallar (RIX), fyrir áframhaldandi samstarf og stuðning við vöxt airBaltic

Mantas VrubliauskasFramkvæmdastjóri leiðakerfis hjá airBaltic

Í sumar verður flogið leiðina fjórum sinnum í viku en eins og er flýgur airBaltic þrisvar sinnum í viku milli Keflavíkurflugvallar (KEF) og Ríga-flugvallar (RIX). Komutími samkvæmt flugáætlun er 23:55 alla sunnudaga, miðvikudaga og föstudaga en brottfarartími er 00:45 alla mánudaga, fimmtudaga og Laugardaga.