Keflavíkurflugvöllur áfram Ljósberi Ljósanætur

Keflavíkurflugvöllur er áfram einn af aðalstyrktaraðilum Ljósanætur í Reykjanesbæ og er í ár einn af níu svokölluðum Ljósberum hátíðarinnar. Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, undirritaði styrktarsamning Keflavíkurflugvallar (KEF) við Reykjanesbæ fyrir hönd KEF við hátíðlega athöfn í Hljómahöll.
Ljósanótt verður haldin dagana 3.–6. september og er ein stærsta bæjarhátíð landsins. Hátíðin sameinar íbúa, félög, listafólk og fyrirtæki í kringum fjölbreytta menningar- og fjölskyldudagskrá.
Stuðningur við samfélagið
KEF leggur áherslu á að taka virkan þátt í samfélaginu á Suðurnesjum og styðja við verkefni sem efla menningu, mannlíf og samfélag. Stuðningurinn við Ljósanótt er hluti af þeirri áherslu.
Ljósanótt er gott dæmi um hvað getur gerst þegar samfélagið leggst á eitt. Á sjötta tug fyrirtækja styðja hátíðina í ár með fjárframlögum, þjónustu og margvíslegu samstarfi og skiptir stuðningur atvinnulífsins miklu máli við að gera umfangsmikla og fjölbreytta dagskrá hátíðarinnar að veruleika.
Saman með ljós í hjarta
Ljósanótt sameinar fólk á öllum aldri og gefur íbúum, félögum, listafólki og fyrirtækjum tækifæri til að taka þátt í að skapa hátíðina. Þessi samstaða endurspeglast í einkunnarorðum hátíðarinnar, „Saman með ljós í hjarta.“
Í ár eru Ljósberar Ljósanætur níu talsins: Landsbankinn, Skólamatur, KEF Keflavíkurflugvöllur, BUS4U, Blue Car Rental, Nettó, GTS, JeEs arkitektar og Reykjanes Investment.
Keflavíkurflugvöllur er stoltur af því að vera áfram Ljósberi og leggja sitt af mörkum til Ljósanætur og samfélagsins á Suðurnesjum.
Ljósanótt verður haldin 3.–6. september. Dagskrá hátíðarinnar má finna á ljosanott.is.