Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Í tilefni Ljósanætur flykktist fólk í KEF að skoða flugvöllinn

Í tilefni Ljósanætur bauð Keflavíkurflugvöllur (KEF) upp á skoðunarferð um völlinn.

Ljósanótt er fjölskyldu- og menningarhátíð í Reykjanesbæ sem er haldin hátíðlega ár hvert. Isavia, rekstraraðili Keflavíkurflugvallar, hefur verið einn af aðalstyrktaraðilum Ljósanætur um árabil. Keflavíkurflugvöllur lagði sitt af mörkum til að gera dagskrá Ljósanætur sem glæsilegasta og af því tilefni bauðst gestum að skoða flugvöllinn fimmtudaginn 5. september.

Hægt var að heimsækja og skoða hinar ýmsu starfsstöðvar flugvallarins, listaverkum var gefinn sérstakur gaumur og fjölbreytt hlutverk starfsfólks KEF kynnt. Framlagið er liður í því að styðja við metnaðarfullt starf á ýmsum sviðum samfélagsins þannig að það dafni og fái að njóta sín.

Anna Björk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri þjónustu og reksturs á Keflavíkurflugvelli, og Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, undirrituðu samstarfssamning KEF og Reykjanesbæjar vegna Ljósanætur.

Ljósanótt hófst fimmtudaginn 5. september og lauk sunnudaginn 8. september. Hátíðin var haldin í 23. sinn en boðið er upp á tónleika, sýningar og margs konar samkomur meðan á hátíðinni stendur.