Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

LOT flýgur til Íslands í fyrsta sinn

Heilsársflug milli Varsjár og KEF

Pólska flugfélagið LOT hefur flug milli Varsjá og Keflavíkurflugvallar frá og með 12. apríl 2025. Þetta er í fyrsta sinn sem flugfélagið, sem er það stærsta í Póllandi, flýgur til Íslands. Félagið ætlar að fljúga til Íslands allt árið um kring. Það áformar að fljúga fjórum sinnum í viku til KEF yfir sumartímann og þrisvar í viku yfir vetrartímann. Flogið verður á Boeing 737 Max 8 vélum flugfélagsins frá Varsjá til KEF að kvöldi og næturflug til baka.

Við á Keflavíkurflugvelli hlökkum til að taka á móti LOT og farþegum félagsins á næsta ári

Grétar Már GarðarssonForstöðumaður flugfélaga og leiðaþróunar á Keflavíkurflugvelli

„Það er alltaf ánægjulegt að bjóða ný félög velkominn í flugvallarsamfélagið á KEF og ég er þess fullviss að LOT verður öflugur samstarfsaðili inn í framtíðina og mikilvæg viðbót á KEF. Með því að velja okkur sem nýjan áfangastað hefur LOT sýnt það í verki að félagið hefur trú á Íslandi sem áfangstað,“ segir Garðar.

Ísland er sannarlega einstakur áfangastaður sem mun án efa bæta net áfangataða hjá LOT Polish Airlines. Eyjan opinberar stórbrotna fegurð sína allt árið og býður upp á eitthvað sérstakt bæði á sumrin og veturna.

Robert LuderaDirector of Network Planning and Alliances hjá LOT Polish Airlines

„Þetta er einn af fáum stöðum á jörðinni þar sem hægt er að upplifa goshveri, virk eldfjöll, jökla, heitar laugar og fossa, á einu og sömu eyjunni. Nýja flugleiðin mun einnig bjóða upp á mikil þægindi fyrir pólska samfélagið á Íslandi, sem er nú stærsti þjóðarminnihlutinn þar. Við óskum öllum farþegum okkar góðrar ferðar á vit norðurljósanna.“

LOT Polish Airlines flýgur til Íslands í fyrsta sinn LOT Polish Airlines