Meira en milljón gesta í ágúst
Fjöldi gesta sem fóru um Keflavíkurflugvöll (KEF) voru 1.017.555 í nýliðnum ágúst mánuði.

Fjöldi gesta sem fóru um Keflavíkurflugvöll (KEF) voru 1.017.555 í nýliðnum ágúst mánuði. Það eru 8,3% fleiri gestir en í ágúst árið á undan.
Samtals flugu 25 flugfélög til 79 áfangastaða í ágúst. Vinsælustu áfangastaðirnir voru New York, Kaupmannahöfn, Lundúnir, París og Boston.
Mest var að gera á flugvellinum þann 4. ágúst þegar 36.923 gestir fóru um völlinn á einum degi.

Samkvæmt tölum frá Ferðamálastofu voru brottfarir Íslendinga um 52 þúsund í ágúst.
Brottfarir erlendra gesta frá landinu til KEF voru um 281 þúsund. Það er svipaður fjöldi brottfara og í ágúst á síðasta ári. Flestar brottfarir má rekja til Bandaríkjamanna (85 þúsund), þar á eftir til Þjóðverja (23 þúsund), Ítala (22 þúsund), Frakka (16 þúsund) og Kanadamanna (13 þúsund).