Ný akbraut tekin í notkun á Keflavíkurflugvelli

„Viðbót þessi við flugbrautarkerfi Keflavíkurflugvallar er stór áfangi í uppbyggingu Keflavíkurflugvallar og liður í að gera flugvöllinn samkeppnishæfari. Keflavíkurflugvöllur er í harðri alþjóðlegri samkeppni og við erum stöðugt að vinna að því að styrkja rekstrargrundvöll flugvallarins, bæta aðstöðuna fyrir flugfélögin og bæta upplifun farþega, “ segir Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar hjá Isavia.
Með nýrri akbraut er öryggi flugbrautarkerfisins aukið með bættu flæði í komum og brottförum. Þetta þýðir að flugvélar munu komast fyrr af flugbrautum og fyrr inn á þær, sem eykur skilvirkni flugbrautakerfisins og hraðar afgreiðslu flugvéla. Akbrautin mun minnka biðtíma flugvéla að komast af akbraut eða komast í loftið á háannatíma og þar af leiðandi minnka kolefnisspor flugvéla á jörðu, sem er eitt af markmiðum flugvallarins.
Fyrsta flugvélin sem ók eftir Mike var Fagradalsfjall, vél af gerðinni Boeing 737-Max-8 vél frá Icelandair sem var á leiðinni frá Keflavíkurflugvelli til Oslóar.
Akbrautin er engin smásmíði þar sem hún er 1200 metra löng og 35 metrar á breidd. Til samanburðar myndi malbikið duga til að malbika 35 fótboltavelli. Kostnaður við akbrautina eru tæpir 4 milljarðar króna.
Framkvæmdir við Mike hófust árið 2022 en þeim lauk í sumarbyrjun 2023.