Nýr vefur lentur
.png&w=3840&q=80)
Keflavíkurflugvöllur, sem tekur á móti milljónum gesta ár hvert, hefur nú kynnt nýjan og betrumbættan vef, kefairport.is. Nýja vefsíðan er hönnuð með þarfir gesta í fyrirrúmi, með það að markmiði að einfalda og bæta upplifun þeirra á flugvellinum.
Þetta er stórt skref fyrir okkur og við getum öll verið mjög stolt af þessari afurð. Verkefnið hefur tekið sinn tíma en niðurstaðan er notendavæn og skýr síða sem mun einfalda upplifun gesta okkar á netinu.
Jón CleonDeildarstjóri markaðsmála og upplifunar á Keflavíkurflugvelli

Nýr vefur er hannaður með það að markmiði að mæta fjölbreyttum þörfum gesta og gera ferðalag þeirra þægilegra með bættri notendaupplifun, skýrari upplýsingagjöf og auknum læsileika.
Við höfum gert allt til að tryggja að vefurinn sé eins þægilegur og mögulegt er fyrir gesti okkar – hvort sem það er að finna flugtíma, fá upplýsingar um þjónustu eða eitthvað annað sem þeir þurfa að vita á ferðalagi sínu. Markmiðið okkar var einfalt: að búa til vefsíðu sem er auðvelt að rata um og veitir allar nauðsynlegar upplýsingar á skýran hátt.

Nýi vefurinn er afrakstur ítarlegrar tveggja ára vinnu sem fól í sér yfirgripsmikla endurskoðun á öllu efni og skipulagi vefsins. Við þá vinnu var tekið mið af þörfum gesta með ítarlegri þarfagreiningu. Þetta var stórt verkefni sem krafðist víðtæks samstarfs innan Keflavíkurflugvallar, með samráði við flugvallarsamfélagið og með utanaðkomandi sérfræðingum.
Nýi vefurinn er fyrsta skrefið í áframhaldandi þróun á stafrænum lausnum og nýsköpun hjá Keflavíkurflugvelli. Fram undan eru fjölmargar spennandi breytingar og nýjungar sem miða að því að styrkja og bæta þjónustuna enn frekar.

Um Keflavíkurflugvöll
Keflavíkurflugvöllur er stærsti alþjóðaflugvöllur Íslands og þjónustar milljónir gesta ár hvert. Isavia, sem rekur flugvöllinn, leggur áherslu á að bjóða upp á framúrskarandi þjónustu og góða upplifun gesta. Markmiðið er að gestir njóti flugvallarins sem best og fái einstaka ferðaupplifun.