Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Nýtt þjónustuver í brottfararsal

Búið er að opna nýtt þjónustuver í brottfararsal flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli þar sem áður voru söluskrifstofur Icelandair. Framkvæmdir við nýju aðstöðuna hafa staðið yfir síðan síðastliðið haust.

Farþegaþjónustan á Keflavíkurflugvelli er með aðstöðu í nýja þjónustuverinu og sinnir þar upplýsingagjöf til farþega. Þar verður einnig tekið á móti farþegum sem þurfa sérstaka aðstoð, þ.e. PRM (Persons with Reduced Mobility) þjónustu, til að komast um flugstöðina, um borð í flugvél eða frá borði.

Þjónustuverið verður opið frá kl. 3 eftir miðnætti og til kl. 23 alla daga vikunnar. Utan opnunartíma er farþegum beint að kallstaur sem er staðsettur við inngang móttökunnar þar sem hægt er að kalla eftir PRM þjónustu.

Móttaka og biðsvæði fyrir farþega sem bókað höfðu PRM þjónustu var áður við lyftuna í innritunarsal flugstöðvarinnar. Nýja aðstaðan er stórt skref í því að bæta þjónustu við PRM farþega sem ferðast um Keflavíkurflugvöll.

Jófríður LeifsdóttirDeildarstjóri farþegaþjónustu á Keflavíkurflugvelli

„Hlutfall PRM farþega sem af heildarfjölda farþega um KEF eykst með hverju ári,“ segir Anna Björk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri þjónustu og rekstrar á Keflavíkurflugvelli. „Það er mikilvægt að þjónustan við þann farþegahóp og aðstaðan þróist og taki breytingum í samræmi við það.“

Samhliða opnun þjónustuversins hefur upplýsingaborði í komusal flugstöðvarinnar verið lokað. Sú þjónusta færist einnig inn í þjónustuverið þar sem upplýsingaborð verður staðsett og verða leiðbeinandi merkingar í komusal uppfærðar til að vísa farþegum á nýju staðsetninguna.