Gleði í opnunarhófi Blue Lagoon Skincare

.jpg&w=3840&q=80)
Verslunin er staðsett á sama stað og áður í verslunar- og veitingarými flugvallarins en við hönnun hennar var lögð áhersla á stílhreint útlit, hlýleika og gott efnisval.
Ný verslun Blue Lagoon Skincare er glæsileg viðbót í verslunarflóruna á KEF og býður upp á framúrskarandi vöruframboð fyrir bæði Íslendinga og erlenda ferðamenn. Húðvörur Bláa Lónsins eru margverðlaunaðar og þekktar um allan heim og það er frábært að áfram verði hægt að nálgast þær í flugstöðinni þar sem margir vilja gera góð kaup á fríhafnarverði.
Gunnhildur Erla VilbergsdóttirDeildarstjóri verslunar og veitinga á Keflavíkurflugvelli


Áhersla á skynræna upplifun
Blue Lagoon Skincare húðvörur hafa notið mikilla vinsælda meðal flugvallargesta í gegnum árin. Húðvörurnar byggja á 30 ára rannsóknum á einkaleyfisvörðum innihaldsefnum Bláa Lónsins og eru þekktar fyrir vísindi, virkni og sjálfbærni. BL+ húðvörulínan er nýjasta viðbót Blue Lagoon Skincare en um er að ræða öflugar formúlur sem vinna gegn öldrunareinkennum húðar, styrkja hana og örva kollagenframleiðslu.


Í versluninni er húðvörubar, þar sem gestir geta fengið sér sæti og prófað vörurnar ásamt því að fá persónulega ráðgjöf. „Við leggjum mikið upp úr skynrænni upplifun gesta okkar í versluninni og er húðvörubarinn hluti af því. Starfsfólk okkar er sérþjálfað til að aðstoða viðskiptavini við val á húðvörum sem henta þeirra húðgerð, svo við hvetjum ferðalanga til að koma við og upplifa,“ segir Eyrún Sif Eggertsdóttir, forstöðumaður verslana hjá Blue Lagoon Skincare.
