Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Páskarnir eru eitt stærsta ferðatímabil ársins

Eitt stærsta ferðatímabil Íslendinga gengið í garð.

Páskarnir eru eitt stærsta ferðatímabil Íslendinga á Keflavíkurflugvelli ár hvert. Þótt mun fleiri Íslendingar séu á faraldsfæti yfir sumartímann dreifast þær ferðir yfir lengra tímabil. Páskarnir eru hins vegar sérstakir á KEF þar sem mikill fjöldi Íslendinga fer til útlanda og snýr til baka innan tveggja vikna.

Þetta kemur meðal annars fram í því að páskarnir eru eina tímabil ársins þar sem almennu bílastæðin (P3) við flugstöðina fyllast, enda fyrst og fremst nýtt af Íslendingum.

279 þús­und gest­ir

Alls verða 1.890 flug um Keflavíkurflugvöll yfir páskana með rúmlega 279 þúsund farþega. Flogið verður til 70 flugvalla í 65 borgum í Evrópu og Norður-Ameríku.

Páskatímabilið er skilgreint frá laugardegi fyrir páska til föstudagsins eftir páska, sem í ár er frá 28. mars til 10. apríl. Til samanburðar voru 1.555 flug á tveggja vikna tímabilinu á undan með um 232 þúsund farþega. Um páskana verða því 355 fleiri flug og um 47 þúsund fleiri farþegar en vikurnar tvær á undan.

Flest flug til Lond­on og Köb­en

Um páskana eru flest flug til og frá London, samtals 143 flug til fjögurra flugvalla. Aðeins einu flugi færra verður til Kaupmannahafnar, en öll um sama flugvöll.

Hvert eru Ís­lend­ingar að fara?

Keflavíkurflugvöllur hefur ekki upplýsingar um nákvæma áfangastaði Íslendinga um páskana, heldur einungis fjölda fluga til hvers áfangastaðar.

Það má ætla að margir Íslendingar séu annað hvort að sækja í sólina í suðurhluta Evrópu eða í skíðasvæðin í Ölpunum og býður KEF upp á góðar tengingar í báðum tilfellum. Til að fá vísbendingu um þetta má skoða fjölda beinna fluga til slíkra áfangastaða.

Lang flest flug í sólina eru til og frá Kanaríeyjum, samtals 56 flug til tveggja flugvalla. Tenerife er mun vinsælli en Gran Canaria með 45 flug á móti 11. Þar á eftir koma Alicante með 22 flug og Barcelona með 16.

Skíða­ferð­ir

Frá Keflavíkurflugvelli er boðið upp á bein flug til fjölda áfangastaða sem eru í grennd við skíðasvæði í Ölpunum. Af þeim áfangastöðum eru flest flug til og frá Mílanó á Ítalíu og Munchen í Þýskalandi.