Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Point og Icelandic Deli opna á Keflavíkurflugvelli

Keflavíkurflugvöllur hefur opnað tvær nýjar verslanir, Point og Icelandic Deli sælkeraverslun, sem bjóða farþegum fjölbreytt úrval af matvælum, ferðavörum og íslenskum sælkeravörum.

Ic­eland­ic Deli sæl­kera­verslun – bragð af Ís­landi

Í Icelandic Deli er hægt að grípa með sér bragð af Íslandi í ferðalagið. Þar má finna úrval af handverksostum, reyktu og þurrkuðu kjöti, hágæða súkkulaði og íslenskum kryddum. Einnig er boðið upp á handvalið úrval af íslensku víni og áfengum drykkjum. Icelandic Deli er tilvalinn staður til að finna fallegar gjafir eða taka með sér bragð af Íslandi í ferðalagið.

Point – fljót­legt og fer­skt

Point býður farþegum fjölbreytt úrval af ferðavörum, snarli, drykkjum, ferskum bakstri, pizzum og öðrum matvælum. Hvort sem farþegar vilja grípa með sér kaffi í flýti eða undirbúa sig fyrir komandi ferðalag, þá hefur Point það sem þarf. Um flugvöllinn má einnig finna nýja Point sjálfssala sem bjóða upp á allt það helsta úr verslunum Point.

Þessar nýju verslanir auka úrvalið fyrir farþega á Keflavíkurflugvelli og stuðla að enn betri upplifun á ferðalaginu.