Taktu flugið með RIFF í KEF
Keflavíkurflugvöllur býður gestum upp á sérstaka ljósmyndasýningu í brottfarasalnum með áhugaverðum augnablikum úr sögu kvikmyndagerðar.

Keflavíkurflugvöllur, í samstarfi við Reykjavík International Film Festival (RIFF) og 66°Norður, býður gestum upp á sérstaka ljósmyndasýningu í brottfarasalnum. Þar má sjá áhugaverð augnablik úr sögu kvikmyndagerðar í tilefni af RIFF.



Ljósmyndarinn Lilja Jóns á heiðurinn að þessum stórkostlegu „bransamyndum“ sem eru teknar á tökustöðum kvikmynda í íslenskri veðráttu. Lilja Jóns er ljósmyndari sem hefur sérhæft sig í „Unit Stills“ ljósmyndun síðasta áratuginn, allt frá því að fyrsta serían af Ófærð hóf göngu sína. Síðan þá hefur hún starfað með íslenskum sem og erlendum framleiðslufyrirtækjum við tökur, bæði hér á landi og erlendis.




