Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Saga Giftstore opnar gjafavöruverslun

Saga Giftstore mun opna nýja gjafavöruverslun á Keflavíkurflugvelli í byrjun ágúst. Verslunin mun bjóða upp á vandað úrval íslenskrar hönnunar, handverks, ullarvara og minjagripa á aðal verslunar- og veitingasvæði flugvallarins.

Saga Gift­store opnar gjafa­vöru­verslun á Kefla­vík­ur­flug­velli

Ný gjafavöruverslun, Saga Giftstore, mun opna á Keflavíkurflugvelli í byrjun ágúst. Verslunin verður staðsett á aðal verslunar- og veitingasvæði flugvallarins og mun bjóða ferðalöngum upp á fjölbreytt úrval gjafa-, handverks- og hönnunarvara með skýra tengingu við Ísland.

Í versluninni verður meðal annars að finna íslenskar ullarvörur, handprjónaðar lopapeysur, íslenskt handverk, minjagripi og norræna hönnun. Þá verður einnig boðið upp á valdar hönnunar- og lífsstílsvörur frá Epal.

Við erum afar stolt af því að bjóða úrval frá okkar fremstu hönnuðum, þar á meðal á Hekla Ísland, Ugla Handverk, Farmers Market, Bjarni Viðar og Sign ásamt úrvali af handprjónuðum íslenskum lopapeysum. Markmið okkar er að tryggja að bæði Íslendingar og erlendir gestir geti fundið fallegar og einstakar hönnunar- og gjafavörur í hæsta gæðaflokki.

Sigrún Edda ElíasdóttirMarkaðsstjóri Saga Giftstore

Rekstraraðili verslunarinnar er Drífa ehf., sem bar sigur úr býtum í nýafstöðnu útboði um rekstur gjafavöruverslunar á Keflavíkurflugvelli. Drífa ehf. hefur áratuga reynslu af verslunarrekstri og þróun verslunarlausna og rekur meðal annars Icewear, eitt þekktasta vörumerki landsins á sviði íslenskra ullar- og útivistarvara.

Við á Keflavíkurflugvelli bjóðum nýjan rekstraraðila hjartanlega velkominn og erum gríðarlega spennt fyrir opnun Saga Giftstore. Þessi nýja verslun verður tilvalinn staður fyrir erlenda ferðamenn sem vilja taka með sér minjagrip frá Íslandi og jafnframt fyrir íslenska flugvallargesti sem leita að handverki og hönnun í hæsta gæðaflokki.

Þórunn MarinósdóttirForstöðumaður viðskiptatekna og sölu á KEF.