Mikill áhugi á sumarstörfum

Það verður líflegt á Keflavíkurflugvelli í sumar. Eins og undanfarin ár hefur Isavia ráðið sumarstarfsfólk til að styðja við starfsemina yfir háannatímann þegar umferð um flugvöllinn eykst og verkefnin verða fleiri.
Í ár bárust 1.318 umsóknir um auglýst sumarstörf á Keflavíkurflugvelli og af þeim fengu 222 ráðningu. Þar af eru 82 að snúa aftur til starfa eftir að hafa áður starfað hjá fyrirtækinu. Þau sem koma aftur þekkja vinnustaðinn, umhverfið og verkefnin á meðan nýtt starfsfólk kemur inn með ferska sýn og nýja reynslu.
Saman styrkir þessi hópur starfsemina á einum annasamasta tíma ársins. Sumarstörfin eru fjölbreytt og tengjast meðal annars þjónustu við farþega, upplýsingagjöf, flæði í flugstöðinni og öðrum verkefnum sem styðja við öruggan og skilvirkan rekstur Keflavíkurflugvallar.

Það er mjög ánægjulegt að sjá hversu mikill áhugi er á sumarstörfum hjá okkur. Keflavíkurflugvöllur er stór, skemmtilegur og fjölbreyttur vinnustaður, sérstaklega yfir sumartímann þegar umferðin er mikil og verkefnin eftir því. Sumarstarfsfólkið okkar gegnir mikilvægu hlutverki í því að tryggja gott flæði, þjónustu og örugga upplifun farþega. Mér finnst sérstaklega gleðilegt að sjá að stór hópur er að koma aftur til starfa hjá okkur, því það segir okkur að fólk hafi góða reynslu af vinnustaðnum og vilji vera hluti af teyminu á ný.
Brynjar Már BrynjólfssonMannauðsstjóri
Keflavíkurflugvöllur er einn stærsti vinnustaður landsins og starfsemin byggir á samvinnu margra hópa. Sumarstarfsfólkið verður því hluti af stærri heild þar sem öryggi, þjónusta og gott samstarf skipta öllu máli.