Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

TAP Air hefur flug milli KEF og Lissabon

Portúgalska flugfélagið TAP Air hefur áætlunarflug milli Keflavíkurflugvallar og Lissabon sumarið 2027. Flogið verður þrisvar í viku frá 1. apríl til 28. október, en með nýju leiðinni opnast jafnframt greiðar tengingar áfram til áfangastaða í Suður-Evrópu, Afríku og Suður-Ameríku.

Portúgalska flugfélagið TAP Air tilkynnti í dag að það ætlaði að hefja flug milli Keflavíkurflugvallar (KEF) og Lissabon á sumaráætlun sinni 2027. Flogið verður þrisvar í viku milli áfangastaðanna frá 1. apríl til 28. október 2027 

TAP Air bætist þar með í hóp þeirra 28 flugfélaga sem hafa boðað að þau ætli að fljúga til og frá KEF næsta sumar. 

Með tengimiðstöð TAP í Lissabon opnast jafnframt góðar tengingar fyrir farþega til fjölmargra áfangastaða, þar á meðal til Faro og Madeira í Portúgal, auk áfangastaða í Afríku og Suður-Ameríku. 

Það er afar ánægjulegt að bjóða TAP Air velkomið til Keflavíkurflugvallar. Lissabon er vinsæll og spennandi áfangastaður og um leið öflug tengimiðstöð sem eykur valmöguleika farþega til fjölmargra áfangastaða í Suður-Evrópu, Afríku og Suður-Ameríku. Við hlökkum til samstarfsins.

Grétar Már GarðarssonForstöðumaður flugfélaga og markaðsmála á KEF.