Tökuorð á flugi um KEF

Íslensk tökuorð eru nú á sveimi víðs vegar um Keflavíkurflugvöll (KEF) í tilefni af Degi íslenskrar tungu. Á Keflavíkurflugvelli er lögð áhersla á að halda íslenskunni á lofti og gera hana að órjúfanlegum þætti í upplifun gesta. Þetta er meðal annars gert með því að miðla margbreytileika íslenskunnar og með því að setja íslenskuna í forgrunn í samstarfi við flugvallarsamfélagið.
Ringulreið og sjampó á flugvellinum
Orðin sem nú prýða flugstöðina hafa sum hver fest sig í sessi í íslensku máli og eru forvitnileg dæmi um hvernig íslensk tunga getur þróast og aðlagast nýjungum í íslensku samfélagi. Meðal orðanna má nefna „ringulreið“ sem dregið er af þýska orðinu Ringelrei og „sjampó“ sem er dregið af hindí orðinu champo sem merkir höfuðnudd.
Markmið verkefnisins er tvíþætt en með því að gera íslenskum tökuorðum hátt undir höfði kynnum við sérkenni íslenskunnar fyrir ferðafólki. Á sama tíma gefst íslenskumælandi gestum tækifæri til að fræðast frekar um tungumálið sitt. Verkefnið er liður í stærra verkefni Keflavíkurflugvallar sem hefur það að markmiði að tengja flugvöllinn við íslenska náttúru, menningu og samfélag.
Tökuorðin sýna þann styrk íslenskunnar að geta tekið við og aðlagast áhrifum víða að. Á Keflavíkurflugvelli tökum við á móti gestum frá öllum heimshornum og því er skemmtilegt að kynna íslenska tungu fyrir þeim með þessum hætti
Jón CleonDeildarstjóri markaðsmála og upplifunar hjá KEF
Markviss vinna við að setja íslenskuna í forgrunn
Unnið hefur verið markvisst að því að setja íslensku í forgrunn á Keflavíkurflugvelli, m.a. á vegvísum og skiltum á vellinum. Markmiðið er að allir gestir á KEF geti reitt sig á skiltin til að komast leiðar sinnar um flugvöllinn og njóti á sama tíma jákvæðrar íslenskrar upplifunar. Verkefnið tekur til um 80 þúsund fermetra svæðis á flugvellinum og krefst því mikils skipulags. Nú standa yfir prófanir á nýjum skiltum þar sem meðal annars er horft til þarfa barna, fólks sem skilur ekki íslensku eða er sjónskert.
Prófun á skiltunum er stórt verkefni sem krefst ítarlegst undirbúnings vegna umfangs og fjölda þátta sem þarf að huga að. Leiðarvísarnir gegna lykilhlutverki í að leiðbeina gestum og stuðla að greiðu flæði um flugvöllinn.
