Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Transavia flýgur áfram milli Amsterdam og Keflavíkur

Hollenska flugfélagið Transiva hefur ákveðið að bjóða áfram upp á flug milli Amsterdam og Keflavíkur sumarið 2025 og eru flugferðirnar strax komnar í sölu til viðskiptavina. Þessi ákvörðun er í góðu samræmi við langtíma uppbyggingarstefnu Keflavíkurflugvallar.

Við erum gríðarlega ánægð og þakklát að Transavia skuli hafa ákveðið að halda áfram með flugin milli Schiphol og Keflavíkur okkar farþegum til hagsbóta

Grétar Már GarðarssonForstöðumaður flugfélaga og leiðaþróunar.

Þessu til viðbótar hefur flugfélagið ákveðið að fjölga flugum um 25% milli ára og verður flogið sex sinnum í viku yfir hásumarið og 5 sinnum í viku utan þess. Transavia er hluti af KLM samsteypunni.

Transavia hóf að fljúga til Íslands frá Amsterdam sumarið 2019, síðan þá hefur flugunum, fjölgað jafnt og þétt og verið heilsársflug síðan 2021.