United Airlines flýgur milli KEF og Chicago í vetur

Ekki verið á vetraráætlun frá 2017
Sala á ferðum hófst í dag. Flogið verður þrisvar í viku milli KEF og Chicago á Boeing 737 Max 8 vélum United Airlines.
Þetta er í fyrsta sinn síðan 2017, þ.e. fyrir heimsfaraldurinn, sem bandarískt flugfélag hefur áætlunarflug til og frá Keflavíkurflugvelli á vetraráætlun sinni,“ segir Grétar Már Garðarsson, forstöðumaður flugfélaga og markaðsmála á KEF.
Við höfum á síðustu árum átt afskaplega farsælt og gott samstarf við United Airlines. Það er fagnaðarefni að flugfélagið hafi ákveðið að bæta KEF við áætlun sína yfir vetrartímann. United Airlines sýnir þannig traust sitt á Íslandi sem áfangstað. Við hlökkum til að styrkja samstarfið við United Airlines enn frekar.
Grétar Már GarðarssonForstöðumaður flugfélaga og markaðsmála á KEF
Flug frá þremur borgum
United Airlines hóf flug milli Keflavíkur og New York/Newark í maí 2018 og bætti við Chicago sem áfangastað sumarið 2021. Félagið er með beint flug frá Chicago og New York/Newark til KEF næsta sumar og hefur einnig tilkynnt um flug milli KEF og nýs áfangastaðar, Washington, og hefst það áætlunarflug sumarið 2026.