Aðalskipulag Keflavíkurflugvallar 2023-2040, tillaga
Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar samþykkti á fundi sínum 29. júní 2026 að auglýsa tillögu að Aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar 2023–2040 í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010. Utanríkisráðuneytið hefur jafnframt samþykkt auglýsingu tillögunnar. Aðalskipulagið markar stefnu um framtíðarnotkun lands og þróun starfsemi innan skipulagssvæðis Keflavíkurflugvallar, sem skiptist í svæði A flugvallarsvæði og svæði B öryggissvæði. Tillagan er unnin í samstarfi Isavia ohf., Landhelgisgæslu Íslands, varnarmálasviðs í umboði utanríkisráðherra og skipulagsnefndar Keflavíkurflugvallar.
Megintilgangur endurskoðunarinnar er að tryggja framtíðarþróun Keflavíkurflugvallar í samræmi við þróunaráætlun Isavia til ársins 2045 og að skapa svigrúm fyrir áframhaldandi uppbyggingu flugvallarstarfsemi. Jafnframt er tillögunni ætlað að tryggja að unnt verði að sinna öryggis- og varnarskuldbindingum Íslands með fullnægjandi hætti.
Með gildistöku nýs aðalskipulags fellur Aðalskipulag Keflavíkurflugvallar 2013–2030 úr gildi.Umhverfismatsskýrsla fylgir tillögunni í samræmi við lög nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
Tillagan er aðgengileg í Skipulagsgátt HMS frá 11. september–23. október 2026, mál nr. 567/2023. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að kynna sér tillöguna og senda inn athugasemdir gegnum Skipulagsgátt HMS eigi síðar en 23. október 2026.
Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar
Utanríkisráðuneytið