Tækifæri í verslun og veitingum
Frumathugun á markaði
Sem liður í þessu stöndum við fyrir frumathugun á markaði (Preliminary Market Consultation). Markmiðið með þeirri athugun er að fá innsýn markaðsaðila í þróun og nýjungar á sviði verslunar, veitinga og annarrar þjónustu við farþega.
Frumathugunin er liður í upplýsingaöflun og er ekki tengd neinu tilteknu útboði. Tilgangur hennar er að styðja við stefnumótun á frumstigi og leggja grunn að langtímaverðmætasköpun fyrir farþega KEF og rekstraraðila verslunar og þjónustu á flugvellinum.
Vinsamlega skilið svörum ykkar sem PDF-skjölum í gegnum útboðsvef Isavia eigi síðar en kl. 12:00 mánudaginn 9. febrúar 2026.
Öllum fyrirspurnum varðandi könnunina verður svarað í gegnum útboðsvef Isavia.
