Tímabundinn rekstur
Spennandi tækifæri
Við leitum eftir rekstraraðilum sem sjá tækifæri í tímabundnum rekstri (Pop-up) á Keflavíkurflugvelli. Tækifærið einskorðast ekki við sölu á áþreifanlegri vöru því einnig er horft til fræðslu, upplifunar eða jafnvel leiktækja á svæðinu.
Opið er fyrir umsóknir fyrir tækifæri á tímabilinu frá janúar 2025 til ársloka 2028 og almennt miðað við að samningur um hvert tækifæri vari í 1 – 12 mánuði. Hámarkslengd hvers samnings getur þó verið lengri en þó verður að jafnaði miðað við að samningstími verði ekki lengri en 23 mánuðir eða að velta samningsins fari ekki yfir kr. 800 milljónir á samningstímanum.
Allar hugmyndir eru skoðaðar en sérstaklega er leitað að hugmyndum sem eru einfaldar í uppsetningu. Hægt er að fá aðgengi að rafmagni á öllum stöðum en aðgengi að heitu og köldu vatni ásamt niðurfalli er mjög takmarkað og einskorðast við ákveðnar staðsetningar. Þá koma tækifæri sem krefjast útsogs ekki til greina.
Umsækjendur verða boðaðir í viðtöl eftir þörfum til að fylgja eftir umsóknum. Við val á viðsemjendum verður horft til þess að aðilar í tímabundnum rekstri auki við fjölbreytni í þjónustu á svæðinu. Sérstaklega verður horft til aðila sem geta boðið uppá tengingu við íslenska menningu ásamt hverskonar upplifun fyrir farþega. Litið er þó til annarra þátta við val á umsækjendum t.d. tekjumöguleika.
Forsendur og kröfur
Samstarfið byggir á auglýsingu viðskiptatækifærisins, viðræðum aðila og undirrituðum samningi aðila.
Samningstími: Samningstími getur að jafnaði orðið 23 mánuðir en þó aldrei lengri en tekur að ná veltu kr. 800 m. á gildistíma samningsins.
Leyfi: Rekstraraðili skal vera með öll tilskilin leyfi sem þarf til reksturs og hafa staðið í skilum á opinberum gjöldum, lífeyrissjóðsiðgjöldum og öðrum lögákveðnum gjöldum þegar sótt er um tækifærið.
Staðsetning í flugstöð: Flest svæði verða í brottfarasal verslana og veitinga þar sem allir brottfarafarþegar og hluti tengifarþega fara í gegn. Hægt er að skoða útfærslu á öðrum staðsetningum eins og innritunarsvæði, komusvæði eða landamærasal.
Aðstöðusköpun og búnaður: Umræða fer fram milli samningsaðila um útfærslur á einingum. Möguleiki er á aðgengi að heitu og köldu vatni, niðurfalli og rafmagn ef þess er þörf en það er þó mismunandi eftir staðsetningu.
Í umsókn skal taka fram eftirfarandi
- Lýsing á „Pop-up“ hugmynd.
- Fjöldi fermetra sem óskað er eftir.
- Óskastaðsetning í flugstöð.
- Lýsing á aðstöðu sem hugmyndin þarfnast, gott að fá myndir ef til staðar.
- Er þörf á vatni, niðurfalli eða rafmagni.
- Aðrar upplýsingar sem umsóknaraðila þykir vert að koma á framfæri.
- Óska tímasetning, upphaf og lengd.
Umsóknir og fyrirspurnir
Geir Ulrich Skaftason
Viðskiptastjóri / Key account manager
[email protected]
Leitast verður eftir að svara fyrirspurnum eins fljótt og auðið er.
Möguleikar
Dæmi up útfærslur á tímabundnum pop-up rýmum.

Opin í báða enda og hægt að aðlaga að þörfum.

Rými við vegg sem auðvelt er að sníða að ólíkum rekstri.

Frístandandi eining úti á gólfi sem stilla má upp á ýmsa vegu.
