Samstæðan og starfsemi
Starfsemi Isavia ohf.
Móðurfélagið Isavia ber ábyrgð á rekstri Keflavíkurflugvallar. Flugvöllurinn er að fullu rekinn á viðskiptalegum forsendum og í hörðu samkeppnisumhverfi. Í starfsemi hans liggja stærstu viðskiptatækifærin en um leið mesta rekstraráhættan.
Framkvæmdastjórn
Framkvæmdastjórn Isavia ohf.
.jpg&w=3840&q=80)
Sveinbjörn er með B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands. Hann starfaði hjá Fjárfestingarbanka atvinnulífsins og við áhættustýringu hjá Icelandair 1999-2005. Hann var fjármálastjóri FL Group 2005-2008 og rekstrar- og fjármálastjóri hjá Clara 2011. Sveinbjörn varð fjármálastjóri Isavia árið 2013. Hann tók við stöðu forstjóra í júní 2019.

Bjarni Örn er með B.Sc. í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík og MBA frá Waseda háskólanum í Japan. Hann starfaði áður hjá Origo og Arion banka og var forstöðumaður á upplýsingatæknisviði hjá Össuri 2019-2022 . Hann var ráðinn framkvæmdstjóri hjá Isavia 2022.

Bjarni er með réttindi til flugumferðarstjórnar og með MBA gráðu frá Háskóla Íslands. Hann hefur starfað hjá Isavia og fyrirrennurum þess síðan 2001, fyrst í flugumferðarstjórn og síðan verkefnum tengdum flugumferðarþjónustu og flugvöllum á Íslandi. Hann var forstöðumaður flugturns á Keflavíkurflugvelli 2020-2023 og flugvallarþjónustu frá 2023-2026. Hann tók við stöðu framkvæmdastjóra í janúar 2026.

Elísabet er með B.A. í bókmenntum og MS í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands og APME í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík. Hún starfaði hjá Hagvangi 2006-2017, var ráðin mannauðsráðgjafi til Isavia árið 2017, mannauðsstjóri árið 2019 og aðstoðarmaður forstjóra árið 2021. Hún tók við stöðu framkvæmdastjóra í janúar 2026.

Hrönn er með B.A. í félagsfræði frá HÍ, M.A. í auglýsingafræði frá Michigan State, M.Sc. frá Edinborgarháskóla og MBA gráðu frá HÍ. Hún var framkvæmdastjóri viðskipta- og markaðssviðs Leifsstöðvar 2002-2008, framkvæmdastjóri neytendasviðs Skeljungs 2008-2009 og viðskiptastjóri Hörpu 2009-2012. Hún hefur verið forstöðumaður hjá Isavia frá 2013. Hún tók sæti í framkvæmdastjórn í janúar 2026.
.jpg&w=3840&q=80)
Ingibjörg er með Cand. Oecon. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í fjármálum frá Cass Business School. Hún var framkvæmdastjóri fjármála og mannauðs og seinna stjórnunar- og mannauðs hjá Valitor 2008-2016 og framkvæmdastjóri fjármála-, mannauðs- og verkefnastjórnar hjá Reiknistofu bankanna 2016-2020. Hún var ráðin framkvæmdastjóri hjá Isavia 2020.

Maren Lind er með B.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og stundaði einnig meistaranám í iðnaðarverkfræði frá sama skóla. Hún hefur starfað hjá Isavia síðan 2012, síðast sem forstöðumaður mannvirkja og innviða á Keflavíkurflugvelli 2020-2026. Hún tók við stöðu framkvæmdastjóra í janúar 2026.
Dótturfélög
Við eigum tvö sjálfstæð dótturfélög: Isavia ANS ehf. og Innanlandsflugvellir ehf. Þessi félög eru að fullu í eigu móðurfélagsins. Þau setja sér sína eigin fyrirtækjastefnu en vinna í samræmi við flestar stuðningsstefnur móðurfélagsins. Þetta er í takt við eigandastefnu dótturfélaga Isavia ohf. Framkvæmdastjórn hvers félags ber ábyrgð á að framfylgja sinni stefnu.


Sinnir flugleiðsöguþjónustu í innanlands- og alþjóðaflugi í flugleiðsögusvæði yfir Norður-Atlantshafi. Félagið rekur sértæka þjálfunardeild fyrir flugumferðarstjórn, flugfjarskipti, fluggagnafræði og flugupplýsingaþjónustu. Ásamt því að sinna flugprófunarverkefnum á Islandi, Grænlandi og Færeyjum.

Innanlandsflugvellir ehf. sér um rekstur íslenskra áætlunarflugvalla annarra en Keflavíkurflugvallar. Reksturinn grundvallast á þjónustusamningi félagsins við Innviðaráðuneytið sem ákvarðar þjónustustig flugvallanna, rekstur og viðhald, enda er um að ræða hluta af almenningssamgöngukerfi sem er í eigu ríkisins.

Lykiltölur 2024
Farþegar
Fjöldi farþega um alla flugvelli Isavia nam rétt rúmlega 9 milljónum árið 2024, sem er 6,5% aukning frá árinu 2023. Fjölgun var mest á Keflavíkurflugvelli eða 7,1% og á Akureyrarflugvelli um 4,7%. Fækkun var hins vegar á Reykjavíkurflugvelli um 0,4% og um 0,8% á Egilsstaðaflugvelli. Heildarfjöldi millilandafarþega um íslenska áætlunarflugvelli árið 2024 fjölgaði úr tæplega 7,8 milljónum í rúmlega 8,3 milljónir, eða um 7,2% milli ára. Mest var fjölgunin á Akureyrarflugvelli en þar fjölgaði millilandafarþegum um 40,0%. Innanlandsfarþegum fækkaði á sama tíma úr tæplega 665 þúsund í rúmlega 652 þúsund, eða um 1,9%.
Flughreyfingar
Flughreyfingar á öllum flugvöllum Isavia voru rúmlega 138 þúsund árið 2024, sem er 4,7% fækkun frá árinu á undan. Hreyfingum fækkaði um 2,3% á Keflavíkurflugvelli, um 6,8% á Reykjavíkurflugvelli, um 7,5% á Akureyrarflugvelli og 4,3% á Egilsstaðaflugvelli. Flughreyfingar á milli landa voru tæplega 68 þúsund, sem er 4,5% aukning fá árinu 2023. Þar af var fjölgunin mest á Keflavíkurflugvelli eða tæp 5,0%. Innanlands fækkaði flughreyfingum úr tæplega 80 þúsund árið 2023 í rétt rúmar 70 þúsund árið 2024, eða um 12,1%. Það skýrist vegna minni umsvifa í einka-og kennsluflugi og snertilendingum.
Vöruflutningar
Árið 2024 fóru 61,6 þúsund tonn af vörum um flugvelli félagsins, sem er 1,3% minna magn en árið á undan. Vöruflutningar á milli landa voru rétt rúmlega 60 þúsund tonn, sem er um 1,1% minna magn en árið 2023. Vöruflutningar innanlands minnkuðu hins vegar á sama tíma um 9,5% eða úr 1.333 tonnum í rúmlega 1.207 tonn.
Flugumferð
Rúmlega 200 þúsund flugvélar fóru um íslenska flugstjórnarsvæðið árið 2024, sem er fjölgun um 5,2% frá árinu 2023. Alls voru flognir rúmlega 282 milljónir kílómetra í íslenska úthafsflugstjórnarsvæðinu árið 2024, eða 7,7% fleiri en árið á undan. Umferð til og frá landinu er 33,7% af umferðinni og yfirflug 66,3%. Rúmlega þriðjungur allrar flugumferðar á leið yfir Norður-Atlantshafið fer í gegnum íslenska flugstjórnarsvæðið sem er í umsjón Isavia ANS.