Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Íslenskan

Eitt elsta lifandi tungumál Evrópu sem tengir okkur við sögur, menningu og arfleifð sem nær aftur til landnámsaldar 

Við erum stolt

Í heiminum tala aðeins um 400 þúsund manns íslensku. Það gerir tungumálið einstakt, en einnig viðkvæmt. Þess vegna skiptir máli að við tölum íslensku, notum hana og hlúum að henni á hverjum degi.

Tungumál er meira en orð. Það mótar hvernig við hugsum, tjáum okkur og skiljum umhverfið. Íslenskan geymir sögu þjóðarinnar, skáldskap hennar, húmor og sérstöðu.

Við hjá KEF erum stolt af íslenskunni og viljum leggja okkar af mörkum til að halda henni lifandi. Hvort sem þú ert að leggja af stað í ferðalag eða koma heim, þá er íslenskan órjúfanlegur hluti af upplifuninni.

Viss­ir þú að...

  • Aðeins um 400.000 manns tala íslensku.
  • Margir Íslendingar geta enn lesið fornar íslenskar sögur sem skrifaðar voru fyrir hundruðum ára.
  • Íslenskan á eigin stafi sem finnast ekki í flestum öðrum tungumálum: Þ þ, Ð ð, Æ æ og Ö ö.
  • Dagur íslenskrar tungu er haldinn ár hvert 16. nóvember.