Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Sólblómabandið

Farþegar með ósýnlega fötlun geta fengið sólblómaband til að bera um hálsinn á ferð sinni um flugstöðina.

Starfsfólk flugstöðvarinnar er upplýst um að farþegar sem bera bandið gætu þurft viðbótartíma, aukna þolinmæði, skilning og tillitssemi.

Hægt er að nálgast böndin á innritunarborðum afgreiðsluaðila í brottfararsal flugstöðvarinnar og á upplýsingaborði í komusal. Ekki er hægt, né þörf á, að panta sólblómabandið fyrir komu á flugvöllinn.

Algengar spurningar