Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur
Vertu á réttum stað á réttum tíma

Sólmyrkvi 2026

Einstakt tækifæri og upplifun á Íslandi þann 12. ágúst 2026

Um al­myrk­vann

Miðvikudaginn 12. ágúst 2026 gefst einstakt tækifæri til að upplifa almyrkva á sólu frá Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954. Almyrkvaslóðin leggst yfir vestanvert landið og almyrkvinn sést frá Reykjanesskaga, höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi, Snæfellsnesi og Vestfjörðum. Í öðrum landshlutum verður hægt að sjá deildarmyrkva. Næsti almyrkvi sem sést frá Íslandi verður ekki fyrr en árið 2196 og því ætti enginn að missa af þessari ógleymanlegu upplifun.

Á island.is/v/almyrkvi-2026 og solmyrkvi2026.is má finna helstu upplýsingar og fræðslu um þennan einstaka atburð.

Við hvetjum alla sem ferðast um Keflavíkurflugvöll þennan dag að skipuleggja ferðina tímanlega og vera vel undirbúið fyrir daginn. Gert er ráð fyrir auknu álagi á samgöngur þar sem almyrkvinn verður sýnilegur og mikilli umferð fyrir og eftir almyrkvann.

Sjald­séð­ur al­myrkvi

Í fyrsta sinn frá árinu 1433 verður hægt að upplifa almyrkva á Keflavíkurflugvelli. Almyrkvinn er einstakur atburður. Hann varir í um tvo tíma, hefst með deildarmyrkva síðdegis og nær hámarki með almyrkva milli kl. 17:44-17:47 eftir landsvæðum.

Hér fyrir neðan má sjá nákvæma tímasetningu myrkvans og lengd hans við Keflavíkurflugvöll.

Deildarmyrkvi hefst:kl. 16:47:09
Almyrkvi hefst:kl. 17:48:01
Almyrkvi í hámarki:kl. 17:48:52
Almyrkva lýkur:kl. 17:49:43
Deildarmyrkva lýkur:kl. 18:47:52
Lengd sólmyrkva:2 klst og 43 sek
Lengd almyrkva:1 mín og 42 sek

Fyr­ir far­þega

Komufarþegum er bent á grasflöt norðan við flugstöðina, við listaverkið Þotuhreiður, sem ákjósanlegan stað til að upplifa almyrkvann en þar mun almyrkvinn vara í um 1 mínútu og 42 sek. en allt ferlið, fyrir og eftir almyrkvann er um 2 klst. Hér eru einnig upplýsingar um skipulagða skoðunarstaði á Reykjanesi í nágrenni flugvallarins.

Brottfararfarþegum er bent á að fylgjast með almyrkvanum gegnum glugga á landgangi (A-hlið) og glugga í suðurbyggingu (D-hlið).

Þotuhreiðrið Listaverk eftir Magnús Tómasson

Upp­lýs­inga­kort

Á sólmyrkvi2026.is má finna gagnvirk kort og myndir sem sýna ítarlegar upplýsingar um almyrkvann eftir staðsetningu. Þar má meðal annars skoða kort sem sýna lengd almyrkvans á Vestfjörðum, Snæfellsnesi, höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesskaga.

Kort af almyrkva á sólu 2026 á Íslandi Kort: Andreas Dill & Sævar Helgi Bragason fyrir solmyrkvi2026.is & icelandatnight.is

Not­um sól­myrkva­gler­augu

Til að sjá og taka myndir af deildarmyrkvanum er nauðsynlegt að nota örugg og vottuð sólmyrkvagleraugu til að fylgjast með. Örugg sólmyrkvagleraugu eru með sérstakar síur sem draga úr hættulegri útfjólublárri og innrauðri geislun. Nota þarf gleraugun í deildarmyrkva, bæði fyrir og eftir almyrkva. Aðeins á meðan almyrkvi stendur yfir, þegar tunglið hylur sólina að fullu, er öruggt að taka þau af í stutta stund. Setjið þau aftur upp um leið og einhver hluti sólarinnar verður sýnilegur.

Sólmyrkvagleraugu Mynd: solmyrkvagleraugu.is

Gang­legar upp­lýs­ingar

Við bendum fólki á að fylgjast vel með eftirfarandi vefsíðum: