
Sumarstarf 2026 - Bílastæðaþjónusta Keflavíkurflugvelli
Við leitum að þjónustulunduðum og glaðlyndum einstaklingum til að sinna þjónustu við flugfélög, farþega, starfsfólk og aðra viðskiptafélaga okkar á Keflavíkurflugvelli. Óskað er eftir snyrtilegum einstaklingum 20 ára og eldri sem hafa áhuga á að vinna í fyrirtæki þar sem umhverfi, öryggi og framúrskarandi þjónusta eru höfð að leiðarljósi. Um er að ræða fullt starf næstkomandi sumar.
Gestir okkar og viðskiptafélagar eru bæði íslenskir og erlendir og því gerum við kröfu um góða tungumálafærni í öllum störfum.
Sumarstörf á flugvallarsvæðinu eru bæði fjölbreytt og krefjandi en við kappkostum að veita starfsfólki gott vinnuumhverfi og góðan starfsanda. Við bjóðum upp á fyrsta flokks mötuneyti og allt starfsfólk fær aðgang að líkamsræktarstöðvum meðan það er í starfi hjá Isavia.
Allir umsækjendur þurfa að standast bakgrunnsathugun lögreglu og framvísa hreinu sakarvottorði í umsóknarferlinu. Þá þurfa þeir sem fá boð um starf að geta sótt undirbúningsnámskeið áður en þeir hefja störf og standast próf í lok námskeiðsins. Tímalengd námskeiða fer eftir eðli starfa.
Þetta er umsókn um starf í bílastæðaþjónustu
Í bílastæðaþjónustu KEF á Keflavíkurflugvelli er bílpróf á beinskiptan bíl skilyrði, meirapróf er kostur. Hlutverk sumarstarfsfólks er að aðstoða farþega og viðskiptavini á bílastæðum, tilfærsla á ökutækjum, og auk þess vera með almennt eftirlit á svæðinu sem og svara tölvupóstum og síma. Mikilvægt er að starfsfólk hafi góða þjónustulund og mikla samskiptahæfileika. Skilyrði fyrir starfi hjá bílastæðaþjónustu er að geta talað og skrifað á íslensku. Unnið á 5-5-4 vöktum 12 tíma í senn.
Úrvinnsla umsókna mun hefjast um leið og þær berast og byrjað verður að ráða í störfin áður en umsóknarfrestur rennur út. Við hvetjum því áhugasama einstaklinga, án tillits til kyns og uppruna til að sækja um sem allra fyrst.
Nánari upplýsingar um Isavia má finna hér á heimasíðu okkar.
Frekari upplýsingar um störfin eða umsóknarferlið veita mannauðsráðgjafar Isavia á netfanginu [email protected]