Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Sérfræðingur í hagdeild

Isavia leitar að gagnadrifnum sérfræðingi í hagdeild og fjárstýringu.

Viðkomandi mun vinna náið með stjórnendum og sérfræðingum að greiningu fjárhagsgagna, þróun mælaborða og stuðningi við stefnumótandi ákvarðanir í fjölbreyttu starfi alþjóðaflugvallar. Þetta er einstakt tækifæri til að hafa áhrif á fjármálastjórnun íslenskrar flugstarfsemi og njóta frábærs starfsumhverfis.

Helstu verkefni:

  • Þróun og framsetning fjárhagslegra upplýsinga til stjórnenda
  • Eftirlit og greining á fjárhagsupplýsingum
  • Þátttaka í áætlana- og spágerð ásamt greiningum tengdum rekstrar- og fjárfestingaáætlunum
  • Umsjón með fjárhagslegum umbótaverkefnum
  • Önnur verkefni í samráði við yfirmann

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun í viðskiptafræði, verkfræði eða tengdum greinum
  • Reynsla af framsetningu fjárhagslegra upplýsinga, m.a. í PowerBI
  • Reynsla af áætlanagerð fyrirtækja er kostur
  • Mjög góð tölvukunnátta og stafræn lausnamiðuð hugsun
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð

Starfsstöð er í Hafnarfirði með viðveru á Keflavíkurflugvelli.

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Umsóknarfrestur er til og með 11.janúar 2026.

Frekari upplýsingar um starfið veitir

Guðfinnur S. Jóhannsson forstöðumaður hagdeildar og fjárstýringar, [email protected].

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.

Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Sækja um