Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Hópstjóri farangurskerfa og umsjónarmanna

Við leitum að öflugum og drífandi hópstjóra til að leiða teymi sem sér um viðhald og bilanir ásamt eftirliti á farangurskerfi og öðrum eignum á Keflavíkurflugvelli. Teymið sinnir einnig fyrsta viðbragði vegna bilana og rekstrarfrávika. Starfið felur í sér verkstjórn, skipulagningu auk þess að tryggja öryggi, gæði og góða þjónustu í öllum verkefnum. Þetta er spennandi tækifæri fyrir einstakling með leiðtogafærni og skipulagshæfileika sem vill taka þátt í að skapa jákvæða og uppbyggjandi vinnumenningu á Keflavíkurflugvelli.

Helstu verkefni:

  • Dagleg umsjón og verkstjórn starfsmanna
  • Skipulagning viðhaldsvinnu í samræmi við viðhaldsáætlanir
  • Forgangsröðun verka í samráði við eignastjóra og/eða planara
  • Mat á rekstraráhrifum viðhalds eða bilana og upplýsingagjöf til hagsmunaaðila
  • Eftirfylgni og samþykki með tímaskráningum starfsmanna
  • Skipulagning innkaupa vegna viðhaldsverka
  • Þátttaka í verkefnum stjórnendateymis Mannvirkja og Innviða

Hæfniskröfur:

  • Sveinspróf í iðngrein eða sambærilegt sem nýtist í starfi
  • Verkstjóranámskeið er kostur
  • Reynsla af verkstjórn teyma og leiðtogafærni er kostur
  • Frumkvæði, þjónustulund og skipulögð vinnubrögð
  • Jákvæðni og drifkraftur
  • Góð færni í ensku, bæði í riti og tali
  • Bílpróf

Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli.

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Umsóknarfrestur er til og með 8.janúar 2026.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Þórhildur Gunnarsdóttir deildarstjóri, [email protected].

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.

Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Sækja um