Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Verkefnastjóri stefnu

Við leitum að drífandi verkefnastjóra sem hefur þekkingu og reynslu af mótun og framkvæmd stefnu. Starfinu fylgja fjölbreyttar áskoranir í líflegu umhverfi og mun viðkomandi starfa í teymi Stefnu og samskipta sem fellur undir skrifstofu forstjóra.

Við leitum að öflugum verkefnastjóra með háskólamenntun sem nýtist í starfi, reynslu af stefnuvinnu og haldbæra reynslu af verkefnastjórnun. Leitað er að lausnamiðunum, jákvæðum og skiplögðum einstaklingi með góða greiningarhæfni og frumkvæði sem getur jafnt unnið sjálfstætt sem í hópi og er tilbúinn til að takast á við krefjandi verkefni. 

Viðkomandi vinnur náið með forstöðumanni stefnu og samskipta.

Helstu verkefni

  • Samhæfa og leiða framkvæmd meginstefnu fyrirtækisins í samræmi við markmið og framtíðarsýn
  • Stuðningur við stjórnendur við mótun og framkvæmd stuðningsstefna
  • Samræming verkefna, aðgerða, mælinga og ferla sem tengjast mótun og framkvæmd stefna félagsins.
  • Regluleg samskipti og upplýsingamiðlun til stjórnenda og starfsfólks
  • Hafa umsjón með gæðaeftirliti, áhættumati og árangursmati tengdu framkvæmd stefnu
  • Verkefnastjórn stefnumótandi verkefna í samræmi við umbreytingaaðferðafræði
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun í stjórnun, viðskiptafræði, stefnumótun eða sambærilegu
  • Reynsla af verkefnastjórnun og innleiðingu stefnu eða breytinga
  • Framúrskarandi þekking og áhugi á málefnum sem starfinu tengjast
  • Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, greiningarhæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð tölvukunnátta og hæfni til að miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku og ensku
  • Þekking og reynsla af sambærilegum störfum
  • Þekking á umhverfi og rekstri flugvalla er kostur

Starfsstöð er í Hafnarfirði og á Keflavíkurflugvelli. 

Isavia býður upp á vinnustað þar sem lögð er mikil áhersla á uppbyggilega fyrirtækjamenningu og fyrirmyndar aðstöðu fyrir starfsfólk.

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Umsóknarfrestur er til og með 8. mars 2026

Upplýsingar um starfið veitir Hrönn Ingólfsdóttir, forstöðumaður Stefnu og samskipta, netfang

[email protected].

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.

Við hvetjum áhugasama aðila, á tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Sækja um