Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Almenn umsókn - uppbygging reksturs og innviða KEF

Keflavíkurflugvöllurinn er í stöðugri þróun svo hann geti ávallt mætt þörfum almennings, farþega, flugfélaga og annarra sem starfa á flugvellinum. Stækkun flugstöðvar, efling innviða, úrbætur á flugbrautakerfi og bætt aðkoma að flugstöðinni eru dæmi um verkefni framtíðarinnar. 

Við erum reglulega að leita að einstaklingum sem hafa áhuga á að taka þátt með okkur í þessari vegferð.  

Vilt þú hjálpa okkur að bjóða betri upplifun og þjónustu, nýta tækniþróun og skapa ný tækifæri alþjóðlegu líflegu umhverfi? 

KEF er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Gestir okkar og viðskiptafélagar eru bæði íslenskir og erlendir og því gerum við kröfu um góða tungumálafærni í öllum störfum.

Starfsstöðvar okkar eru á Keflavíkurflugvelli og í Hafnarfirði. 

Almenn umsókn um starf hjá KEF kemur ekki í staðin fyrir umsókn um auglýst störf. 

Í samræmi við lög um þjóðskjalasafn er umsóknum eða upplýsingum um umsækjendur í kerfum Isavia ekki eytt.

Sækja um