Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Sérfræðingur í flugöryggismálum

Við leitum að árangursdrifnum einstaklingi í starf sérfræðings í flugöryggismálum á Keflavíkurflugvelli. Viðkomandi þarf að hafa mikinn áhuga á öryggismálum og þekking og reynsla af störfum tengdum flugi og flugvöllum er kostur.

Starfað er í samræmi við öryggisstjórnunarkerfi flugvallarins og ytri sem innri kröfur til öryggis starfseminnar.

Starf sérfræðingsins er fjölbreytt og krefjandi í síbreytilegu umhverfi fyrirtækis með reglustýrða starfsemi, þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, samstarf og stöðugar umbætur.

Helstu verkefni:

  • Umsjón og eftirfylgni með atvikaskráningum og greiningu atvika
  • Rannsókn atvika og skýrslugerð
  • Framkvæmd og eftirfylgni öryggismata
  • Framkvæmd öryggisúttekta
  • Framkvæmd öryggiskannana
  • Þátttaka í mótun þjálfunar og uppfærslu ferla og skjala
  • Virk þátttaka í eflingu öryggisvitundar starfsfólks

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi eða viðeigandi menntun í flugmálum.
  • Þekking og/eða reynsla af gæða- og öryggisstjórnun er kostur
  • Þekking á flugmálum og flugvallarekstri er æskileg
  • Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og geta til að starfa sjálfstætt og í teymi
  • Góð færni í mannlegum samskiptum
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku, í töluðu og rituðu máli

Starfsstöð: Keflavíkurflugvöllur

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Umsóknarfrestur er til og með 11. maí 2026.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Guðjón Atlason, deildarstjóri flugöryggisdeildar, [email protected]

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.

Sækja um