Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Matreiðslumaður í mötuneyti KEF

Framtíðarstarf - Matreiðslumaður í mötuneyti KEF

Við leitum að þjónustulunduðum og jákvæðum einstaklingi til starfa í mötuneyti okkar á Keflavíkurflugvelli. Starfið felur í sér þjónustu við starfsfólk, gesti og viðskiptafélaga í fjölbreyttu og líflegu starfsumhverfi þar sem öryggi, umhverfismál og framúrskarandi þjónusta eru höfð að leiðarljósi. 

Um fullt starf er að ræða en til greina kemur að ráða í dagvinnu 8-16 eða á vaktir, með 2-2-3 fyrirkomulagi.

Gestir okkar og samstarfsaðilar eru bæði íslenskir og erlendir og því er góð tungumálafærni mikilvæg. Við leggjum áherslu á gott vinnuumhverfi, sterkan starfsanda og velferð starfsfólks. 

Þetta er umsókn um starf matreiðslumanns í mötuneyti KEF

Isavia rekur glæsilegt mötuneyti fyrir starfsfólk sitt og leitar að einstaklingi sem býr yfir metnaði, þjónustulund og góðri hæfni í mannlegum samskiptum. Viðkomandi þarf að hafa gæði, fjölbreytni og lýðheilsu að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vera leiðtogi í eldhúsi í fjarveru rekstrarstjóra.
  • Umsjón með daglegum störfum starfsfólks og gæðum starfseminnar.
  • Matreiðsla, undirbúningur og frágangur matvæla.
  • Móttaka vara, frágangur á lager og eftirlit með hitastigi matvara.
  • Innkaup á matvælum og rekstrarvöru í samstarfi við rekstrarstjóra eða í fjarveru hans.
  • Undirbúningur veitinga fyrir fundi og viðburði.
  • Eftirlit með tækjum og búnaði mötuneytisins og samráð um viðhald.
  • Ábyrgð á að ræstingu sé framfylgt.
  • Önnur tilfallandi verkefni samkvæmt ákvörðun næsta yfirmanns.

Næsti yfirmaður er rekstrarstjóri mötuneytis.

Menntun og hæfniskröfur

  • Menntun á sviði matreiðslu er skilyrði.
  • Góð samskiptafærni og þjónustulund.
  • Sjálfstæði, skipulagshæfni og metnaður í starfi.

Við hvetjum öll áhugasömum, óháð kyni eða uppruna, til að sækja um sem fyrst.

Frekari upplýsingar um störfin eða umsóknarferlið veitir Rekstrastjóri mötuneytis Isavia Stefán Hlynur Karlsson á netfanginu  [email protected]

Sækja um