Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Viltu starfa með öflugu teymi starfsfólks sem sinnir lykilverkefnum í fjármálum og bókhaldi? Við leitum að vandvirkum og lausnamiðuðum bókara sem hefur áhuga á að vinna í fjölbreyttu og faglegu umhverfi, þar sem nákvæmni og samvinna skipta máli. Bókari ber ábyrgð á bókun reikninga og afstemmingarvinnu efnahagsliða hjá Isavia ohf. og dótturfélögum.

Helstu verkefni

  • Móttaka og skráning reikninga
  • Almennar bókhaldsfærslur
  • Afstemmingarvinna
  • Ýmis tilfallandi bókhaldsverkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Reynsla af bókhaldi skilyrði
  • Þekking á BC bókhaldskerfi er kostur
  • Samstarfshæfni og jákvætt hugarfar
  • Frumkvæði og umbótahugsun
  • Góð þekking á að nýta tæknilausnir til að bæta verkferla

Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli.

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Helga Erla Albertsdóttir, í gegnum netfang [email protected]

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.

Við hvetjum áhugasama aðila, óháð kyni og uppruna, að sækja um.

Sækja um