Vegna aukinna umsvifa óskum við eftir að ráða metnaðarfullan og jákvæðan lögfræðing til að slást í öflugan hóp starfsfólks Isavia. Viðkomandi mun bera ábyrgð á að veita lögfræðiráðgjöf til allra sviða félagsins í þeim tilgangi að teknar séu vel upplýstar ákvarðanir. Við bjóðum upp á einstakt starfsumhverfi á Íslandi við rekstur alþjóðaflugvallar þar sem verkefnin eru mjög fjölbreytt og krefjandi.
Starfið tilheyrir einingunni Innkaup, lögfræði og upplýsinga- og skjalastjórnun og mun viðkomandi því starfa með öflugum hópi sérfræðinga að því að tengja heiminn í gegnum Ísland.
Helstu verkefni:
- Ráðgjöf við gerð og yfirlestur samninga og annarra löggerninga
- Yfirlestur og ráðgjöf vegna útboðsmála
- Kröfugerð fyrir hönd félagsins í skaðabóta- og innheimtumálum
- Ráðgjöf vegna vátrygginga-, skipulags- og samkeppnismála
- Rýni og skoðun á ytri kröfum frá alþjóðastofnunum, Alþingi og ráðuneytum
- Ýmis önnur margvísleg lögfræðileg verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Embættispróf og/eða meistarapróf í lögfræði
- Sterk fagleg þekking og reynsla, m.a. í samningarétti, útboðsrétti, kröfurétti, félagarétti, skaðabótarétti, stjórnsýslurétti, EES-rétti og samkeppnismálum
- Aðlögunarhæfni og hæfni til að tileinka sér nýja þekkingu hratt og vel
- Vilji og geta til að vinna að fjölbreyttum lagalegum viðfangsefnum
- Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
- Framúrskarandi hæfni og lipurð í samskiptum og teymisstarfi
Starfsstöð er í Hafnarfirði.
Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.
Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.
Umsóknarfrestur er til og með 25. maí 2026.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Eyþóra Kristín Geirsdóttir forstöðumaður í gegnum netfang [email protected].
Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.
Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.