Hefur þú áhuga á að sinna viðhaldi tæknibúnaðar á Keflavíkurflugvelli?
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum rafvirkja til starfa við sérhæfð rafvirkjastörf (smá- og lágspennu). Viðkomandi mun sinna fyrirbyggjandi viðhaldi, bregðast við bilunum og skrá viðhaldssögu og notkun varahluta í viðeigandi kerfi.
Rafvirki í sérhæfðu viðhaldi styður við öruggan og skilvirkan rekstur flugvallarins. Bakvaktir geta orðið hluti af starfinu þegar viðkomandi hefur öðlast nauðsynlega reynslu og þekkingu í bilanagreiningum og viðgerðum.
Helstu verkefni:
- Viðhald á fjölbreyttum rafbúnaði flugvallarins
- Eftirlit með eignum og bilanagreiningar
- Styðja við uppsetningu á sérhæfðum búnaði
- Skráning viðhaldssögu og notkun á varahlutum
Hæfniskröfur:
- Sveinspróf í rafiðngreinum eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Íslensku- og enskukunnátta skilyrði
- Góð samskiptafærni og jákvæðni
- Frumkvæði, þjónustulund og skipulögð vinnubrögð
- Góð almenn tölvukunnátta
- Metnaður og vandvirkni í starfi
Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli og bjóðum við upp á rútuferðir milli höfuðborgarsvæðisins og flugvallarins fyrir starfsfólk Isavia
Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.
Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.
Umsóknafrestur er til og með 14.september 2026
Frekari upplýsingar um starfið veitir Samson Jóhannsson, hópstjóri sérhæft viðhald, [email protected].