Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Viltu taka þátt í að móta framtíð Keflavíkurflugvallar?

Við leitum að metnaðarfullum og skipulögðum einstaklingi í starf ORAT sérfræðings. ORAT (Operational Readiness, Activation & Transition) er aðferðafræði sem stuðst er við í framkvæmdaverkefnum á Keflavíkurflugvelli og snýr að því að tryggja samræmda þátttöku hagaðila frá upphafsstigi hönnunar þar til nýir innviðir eru teknir í rekstur. Markmiðið er að tryggja að byggingar, kerfi, ferlar og fólk séu tilbúin á tilsettum tíma og stuðla þannig að farsælli innleiðingu nýrra innviða í rekstur.

Fram undan eru fjölbreytt og spennandi uppbyggingarverkefni á Keflavíkurflugvelli. Við leitum því að einstaklingi sem er skipulagður, lipur í samskiptum og lausnamiðaður og hefur áhuga á að taka virkan þátt í þeim verkefnum.

Starf ORAT sérfræðings er staðsett innan deildar Verkefnaskrár og samhæfingar á sviði Flugvallarþróunar.

Helstu verkefni:

  • Leiða samskipti og samráð við hagaðila og aðrar einingar Isavia vegna undirbúnings nýrra innviða fyrir rekstur
  • Skipuleggja og halda utan um verkefnaskjöl í samræmi við staðla og verklag
  • Samræma og þróa tímaáætlanir ORAT og tryggja samþættingu þeirra við heildartímaáætlanir framkvæmda
  • Samræma og þróa kynningar-, innleiðingar- og þjálfunaráætlanir
  • Stýra verkefnum eða einstökum verkþáttum
  • Þróa ORAT aðferðarfræðina og stuðla að stöðugum umbótum í verklagi

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi 
  • Þekking og reynsla af rekstri flugvalla er kostur
  • Reynsla af verkefnastjórnun er æskileg
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði og jákvætt viðhorf
  • Góð tæknikunnátta og áhugi á stafrænum lausnum
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku
  • Góð skipulags– og samskiptahæfni

Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli.

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.  

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Umsóknarfrestur er til og með 23.nóvember 2026.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Marta Sigurðardóttir deildarstjóri, í gegnum netfang [email protected].

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið. 

Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Sækja um