Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur
Hefur eitthvað týnst?

Tapað fundið

Hér fyrir neðan finnur þú upplýsingar um hvert þú átt að leita ef þú týnir einhverju á flugvellinum eða í flugvél á leið um Keflavíkurflugvöll

Hvert get­ur þú leitað?

Munir sem týnast á flugvellinum

Munir sem hafa tapast á Keflavíkurflugvelli eru í umsjón Securitas. Á vefsíðu Securitas getur þú lagt fram kröfu / fyrirspurn til þess að endurheimta týnda muni. Smelltu hér til þess að opna vefsíðu Securitas.

Munir sem týnast um borð hjá Icelandair

Munir sem tapast í flugvélum Icelandair á leið til Keflavíkurflugvallar eru í umsjón Securitas. Smelltu hér til þess að opna vefsíðu Securitas og leggja fram kröfu um týnda muni. 

Týndir munir hjá öðrum flugfélögum

Ef þú hefur týnt hlut um borð í vél hjá öðrum flugfélögum en Icelandair bendum við þér á að hafa beint samband við viðkomandi flugfélag. Þeir hlutir verða ekki eftir á Íslandi. Upplýsingar yfir þau flugfélög sem starfa á Keflavíkurflugvelli

Afgreiðsla og opnunartími

Afgreiðslan er opin frá 8.00-16.00 alla daga vikunnar og er staðsett í kjallara komusals flugstöðvarinnar. Sjá á korti.

Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið [email protected].

Ef farangur skilar sér ekki á áfangastað skal leita til viðkomandi flugfélags.

Ef þú týnir farangrinum þínum eða lausamunum um borð skaltu hafa samband við þitt flugfélag.