Yuzu er staðsett í hjarta Aðalstrætis í brottfararsal Keflavíkurflugvallar, þar sem ferðalagið heldur áfram, stuttu eftir öryggisleit og Ísland Duty Free. Hér eru hamborgarar í aðalhlutverki, með ljúffengum austurlenskum áhrifum sem kitla bragðlaukana. Á morgunmatseðlinum má meðal annars finna avókadóborgara og dúnmjúkar pönnukökur. Yuzu er tilvalinn viðkomustaður áður en haldið er út í heim. Staðsetninguna finnur þú á korti hér.

- Opnunartími
Opið alla daga í tengslum við öll flug.
- Staðsetning
Aðalbygging - 2. hæð (eftir öryggisleit)
- Hafa samband
Sími:
Netfang:
