Farangur
Nýr og rúmbetri töskusalur hefur verið opnaður á Keflavíkurflugvelli. Töskusalurinn er fyrsti áfanginn sem tekinn er í notkun í nýrri austurálmu flugstöðvarinnar og miðar að því að bæta aðstöðu fyrir farþega og upplifun þeirra.


Ef farangur skilar sér ekki á áfangastað skal leita til viðkomandi flugfélags.

Munir sem hafa tapast á Keflavíkurflugvelli og um borð hjá Icelandair eru í umsjón Securitas.

Það getur verið gott að geyma farangurinn á flugvellinum. Farangursskápar eru staðsettir komu megin fyrir utan flugstöðina.