Yfir 700 þúsund gestir á ferð í maí

Gestir Keflavíkurflugvallar (KEF) voru 701.900 í maímánuði, sem er 2,7% fjölgun frá maí á síðasta ári. Farþegafjöldi mun halda áfram að aukast yfir sumarmánuðina og gerir farþegaspá KEF ráð fyrir að yfir sumarið, apríl til október, muni 5,6 milljónir gesta leggja leið sína um völlinn.
Alls flugu 28 flugfélög til 76 áfangastaða í maí. Vinsælustu áfangastaðirnir sem var flogið beint til voru Kaupmannahöfn, London, New York, París og Amsterdam.
Mest var að gera í maímánuði þann 25. maí þegar 27.871 gestir fóru um KEF.

Brottfarir Íslendinga voru 67 þúsund í maí samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Það er 25% aukning frá maí á síðasta ári.
Brottfarir erlendra gesta frá landinu um KEF voru 159 þúsund. Það gerir 1,3% aukningu frá maí árinu á undan. Flestar brottfarir voru tilkomnar vegna Bandaríkjamanna (24% af heildarbrottförum), Breta (8%), Þjóðverja (7%), Pólverja (6%) og Kanadamanna (5%).