Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Nýtt aðalskipulag KEF í kynningu

Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar hefur samþykkt að auglýsa tillögu að nýju aðalskipulagi fyrir tímabilið 2023–2040.

Tillagan er unnin í samstarfi Isavia ohf., Landhelgisgæslu Íslands, varnarmálasviðs í umboði utanríkisráðherra og skipulagsnefndar flugvallarins. Markmið hennar er að skapa stefnu fyrir þróun og uppbyggingu flugvallarsvæðisins til næstu ára, bæði með tilliti til vaxandi flugumferðar og þeirra öryggis- og varnarskuldbindinga sem Ísland hefur á svæðinu.

Mik­il­vægt skref í fram­tíð­ar­upp­bygg­ingu flug­vall­ar­ins

Keflavíkurflugvöllur er helsta alþjóðagátt landsins og gegnir lykilhlutverki í samgöngum, ferðaþjónustu og atvinnulífi þjóðarinnar. Nýtt aðalskipulag byggir meðal annars á Þróunaráætlun Isavia til ársins 2045, þar sem gert er ráð fyrir áframhaldandi vexti flugvallarins og stækkun innviða í takt við fjölgun farþega.

Skipulagið á að tryggja að flugvöllurinn hafi nægt svigrúm til vaxtar, bætta þjónustu við notendur og styrka stöðu sína sem alþjóðlegur tengiflugvöllur milli Evrópu og Norður-Ameríku. Jafnframt er lögð áhersla á að skipulagið styðji við varnarskuldbindingar Íslands og starfsemi á öryggissvæði flugvallarins.

Helstu breyt­ingar frá gild­andi að­al­skipu­lagi

Ein veigamesta breytingin í aðalskipulaginu felst í því að lagt er til að flugbraut 07/25 verði felld út. Flugbrautin hefur ekki verið í notkun í meira en 25 ár og samkvæmt greiningum hefur brautin lítil áhrif á nothæfi flugvallarins. Ávinningur af rekstri hennar er því talinn óverulegur á móti kostnaði. Með niðurfellingu hennar losnar jafnframt um landsvæði sem getur nýst til frekari uppbyggingar. Á svæðinu er gert ráð fyrir nýju flugþjónustusvæði með uppbyggingu sem tengist flugrekstri, vöruflutningum, þjónustu og annarri starfsemi sem þarf að vera í næsta nágrenni flugvallarins. Svæðið er talið skapa ný tækifæri fyrir flugtengda atvinnustarfsemi og bætta samnýtingu innviða. 

Önnur mikilvæg breyting er aukið byggingarmagn bæði á flugþjónustusvæðum og innan öryggissvæðis flugvallarins. Byggingarheimildir á öryggissvæði B eru auknar verulega til að mæta þörfum vegna varnartengdrar starfsemi og framtíðaruppbyggingar. Jafnframt eru mörk milli flugvallarsvæðis (A-svæðis) og öryggissvæðis (B-svæðis) uppfærð til samræmis við nýrri lagaramma og skilgreiningar ríkisins.

 Aukin áhersla á sam­göng­ur og sjálf­bærni

Í tillögunni er einnig horft til bættrar aðkomu að flugvellinum og betri tenginga við nærliggjandi sveitarfélög m.a. í ljósi tvöföldunar Reykjanesbrautar. Gert er ráð fyrir tengingum við nýtt flugþjónustusvæði nálægt Aðaltorgi og mögulegu sérrými fyrir almenningssamgöngur til framtíðar. Markmiðið er að bæta flæði farþega, starfsfólks og vöruumferðar.

Mikil áhersla er jafnframt lögð á sjálfbærni. Skipulagið gerir ráð fyrir blágrænum ofanvatnslausnum, aukinni endurnýtingu jarðvegs sem fellur til vegna framkvæmda og aðstöðu fyrir meðhöndlun hans. Þá er undirbúið fyrir orkuskipti í flugi, m.a. með innviðum fyrir nýja orkugjafa og sjálfbært flugeldsneyti.

Hvar er ferlið statt?

Skipulagsvinna við endurskoðunina hófst með kynningu skipulagslýsingar haustið 2023. Í kjölfarið var vinnslutillaga kynnt sumarið 2025 og bárust umsagnir frá sveitarfélögum, stofnunum, fyrirtækjum og öðrum hagsmunaaðilum. Þær athugasemdir hafa verið teknar til greina og unnin hefur verið endanleg tillaga til auglýsingar.   Tillagan að Aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar 2023–2040 hefur nú verið samþykkt til auglýsingar og er aðgengileg í Skipulagsgátt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) frá 11. september til 23. október 2026. Á því tímabili geta allir þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta kynnt sér gögnin og sent inn athugasemdir. Að loknu auglýsingatímabili verður farið yfir innsendar umsagnir og athugasemdir áður en tekin verður endanleg ákvörðun um staðfestingu aðalskipulagsins.