Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Mikilvægt að bóka bílastæði fyrir páskana

Búist er við mikilli umferð um Keflavíkurflugvöll um komandi páska. Við mælum með að farþegar og gestir bóki bílastæði tímanlega.

Frá og með fimmtudeginum 10. apríl næstkomandi og fram yfir páska er ekki hægt að leggja bílum á Betri og Almennum stæðum - P1 og P3 - við flugvöllinn án þess að þau séu fyrir fram bókuð á vef KEF. Fyrirsjáanlegt er að bílastæðin verði fullnýtt fyrir og yfir hátíðarnar og því er þetta gert til að tryggja að farþegar sem eiga bókuð stæði fái þau. Það er mikilvægt að benda farþegum á að frá fimmtudeginum næsta verður ekki hægt að fá bílastæði á P1 og P3 nema þau séu bókuð. 

Bókunarkerfið fyrir bílastæði á vefsíðu Keflavíkurflugvallar tryggir farþegum stæði um páskana. Ferðalöngum sem ekki eru með bókuð bílastæði er bent á aðra samgöngumáta til og frá KEF. Þar má nefna ferðir með bílaleigubílum, leigubílum, rútum eða strætisvögnum. 

Hér má finna kort af bílastæðum við KEF og upplýsingar um staðsetningu samgönguþjónustu við flugstöðina neðst í þessum hlekk. 

Forðast óþarfa aukakostnað  

Bílastæðakerfi KEF er með aðgangsstýringu sem les bílnúmer á bílum þegar ekið er inn á þau og út af þeim. Boðið er upp á fjölbreyttar greiðsluleiðir með bílastæðaforritum.  

Hægt er að greiða með Autopay og einnig með bílastæðaappinu Parka, auk þess sem sjálfsalar eru áfram til staðar inni í flugstöðinni. Ef engin þessara greiðsluleiða er notuð kemur reikningur samkvæmt gjaldskrá í heimabanka bíleiganda. Farþegum er þó bent á að ef sú leið er valinn bætist 1.490 króna þjónustugjald ofan á bílastæðagjaldið og er fólki því bent á að forðast þennan aukakostnað með því að nýta þær greiðsluleiðir sem eru í boði. Hægt er að greiða á vef Autopay allt að tveimur sólahringum eftir að bílastæðið er yfirgefið og komast þannig hjá óþarfa kostnaði. Þarna er hægt að slá inn bílnúmer til að sjá hvort eftir sé að greiða fyrir notkun á bílastæði. 

Fimm mínútur í rennunni 

Við minnum á gjaldtöku í svokallaðri rennu við brottfararinngang flugstöðvarinnar sem hófst í byrjun mars. Rennan er ætluð þeim sem þurfa að aka upp að flugstöðinni og stöðva bíl sinn þar í stutta stund til að hleypa út farþegum og losa farangur. Gjaldfrjálst er að stoppa þar í allt að fimm mínútur, en almenn nýting farþega á rennunni er undir þeim tímamörkum. Þurfi farþegar lengri tíma er bent á að hægt er að leggja gjaldfrjálst á P2 bílastæðunum komu megin í hálftíma. 

Erindi til Bílastæðaþjónustu KEF 

Ef farþegar hafa spurningar varðandi  Bílastæðaþjónustu KEF bendum við á að hægt er að senda erindi til okkar hér.