Nemendur kynntust fjölbreyttum störfum á Keflavíkurflugvelli

Starfsgreinakynning grunnskólanna á Suðurnesjum var haldin 26. september. Yfir 900 nemendur komu úr 8. og 10. bekk grunnskólanna, auk nemendahóps frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Nemendurnir fengu að kynnast hinum ýmsu störfum sem eru unninn á Keflavíkurflugvelli.

Starfsfólk flugvallarins starfa meðal annars við flugvernd og eftirlit, verkfræði, flugumferðarstjórnum í flugturni, í flugvallarþjónustu og farþegaakstri. Mannauðsráðgjafar Isavia tóku vel á móti nemendum og kynntu þessu fjölbreyttu störf fyrir þeim sem vakti mikla lukku. Þá var unga fólkið duglegt að spyrja og mörg fengu að prófa alls kyns búnað og tæki sem tengist störfunum.


Tilgangur starfsgreinakynningarinnar, sem Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum stendur fyrir, er að efla starfsfræðslu og menntun grunnskólanemenda, auka starfsvitund og skerpa framtíðarsýn ungs fólks. Í sjálfbærnistefnu Isavia er áhersla lögð á markvissa vinnu með nærsamfélaginu og þátttöku í tækni- og starfsmenntun.
Starfsgreinakynningin er mikilvægur liður í að veita ungu fólki innblástur og kærkomið tækifæri fyrir starfsfólk að miðla af þekkingu sinni og reynslu.
