Leigubílar, rútur og stórnotendur
Leigubílastæði
Núverandi gjaldskrá fyrir leigubílaþjónustu við flugstöðina í Keflavík tók gildi árið 2015, með það að markmiði að bæta umferðarskipulag og aðstöðu fyrir bílstjóra.
Aðgangsstýrt svæði er eingöngu fyrir leigubílstjóra með gilt atvinnuleyfi samkvæmt lögum nr. 120/2022.
Umsókn um aðgang er rafræn og hægt er að fylla hana út hér fyrir neðan. Aðeins þeir sem hafa fullt atvinnuleyfi geta keypt aðgang; skilyrt leyfi eru ekki gild.
Verð fyrir staka ferð er 490 krónur.
Rútustæði
Gjaldtaka fyrir hópbifreiðar við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli felst einungis í gjaldi fyrir sótta farþega en ekki fyrir farþega sem sleppt er út. Athugið að skilmálar um aðgang að hópbifreiðasvæðinu voru uppfærðir 17. september 2025.
Verðskrá (gildir frá 18. maí 2026)
Gjaldið tekur breytingum 1. maí ár hvert í samræmi við neysluverðsvísitölu.
- Stakt gjald fyrir hverja ferð 7 eða færri farþega: 1.990 kr.
- Stakt gjald fyrir hverja ferð 8 - 14 farþega: 3.050 kr.
- Stakt gjald fyrir hverja ferð 15 - 22 farþega: 4.850 kr.
- Stakt gjald fyrir hverja ferð 23 - 44 farþega: 9.900 kr.
- Stakt gjald fyrir hverja ferð 45 eða fleiri farþega: 13.490 kr.
Verðskrá fyrir stórnotendur
Þessi verðskrá gildir fyrir stórnotendur sem nota bílastæðin P3 og P1 við Keflavíkurflugvöll. Hún nær aðeins til ökutækja skráðra fyrir 7 farþega eða færri, með heildarþyngd undir 3.500 kg og sem ekki eru notuð í atvinnuskyni.
Stórnotendur eru skilgreindir sem:
KEF Parking Standard (ársviðskipti yfir 2.000.000 kr.)
KEF Parking Plus (ársviðskipti yfir 20.000.000 kr.)
Aðeins notendur með virka reikninga í skilum hjá Isavia ohf. geta nýtt þessa þjónustu. Almenn verðskrá gildir að öðru leyti.
Aðgangsheimildin er veitt í þeim tilgangi að auðvelda rekstrartengdar ferðir og afgreiðslu starfsmanna, viðskiptavina eða annarra aðila sem tengjast starfsemi viðkomandi lögaðila. Þjónustan er eingöngu ætluð lögaðilum. Einstaklingar geta ekki sótt um eða fengið aðgangsheimild