Meðferð persónuupplýsinga
Við leggjum áherslu á örugga og ábyrga meðferð persónuupplýsinga. Við leitumst við að takmarka vinnslu persónuupplýsinga eins og hægt er og safna ekki persónuupplýsingum umfram það sem nauðsynlegt er.
Öll vinnsla á persónuupplýsingum, þ.m.t. öflun, skráning, vistun og meðferð þeirra, lýtur lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og öðrum reglum sem settar hafa verið á grundvelli persónuverndarlaga („persónuverndarlög“).
Við tryggjum að vinnsla persónuupplýsinga, sem við berum ábyrgð á, sé í samræmi við persónuverndarlög.
Hér að neðan eru upplýsingar um söfnun og vinnslu persónuupplýsinga í gegnum vefinn okkar og vegna eftirlitsmyndavéla. Einnig eru upplýsingar um réttindi þín og hvernig þú getur nýtt þau.
Persónuverndarfulltrúi okkar hefur eftirlit með því að farið sé eftir lögum og reglum um persónuvernd í starfseminni. Fyrirspurnir, athugasemdir og ábendingar varðandi persónuupplýsingar og persónuvernd má senda á [email protected].
Óskir þú eftir aðgangi að persónuupplýsingum þínum sem eru í vinnslu hjá Isavia eða dótturfélögum þarftu að skrá þig inn með rafrænum skilríkjum hér í auðkenningargátt og fylla inn beiðni um mínar persónuupplýsingar. Smelltu hér til að skrá þig inn.
Nánari upplýsingar
Upplýsingar sem þú lætur okkur í té
Vera má að þú látir okkur í té með beinum eða óbeinum hætti persónuupplýsingar er varða þig, til dæmis þegar nýtir þér þjónustu sem við bjóðum á vefsíðu okkar, hefur samband við okkur gegnum vefgátt eða með öðrum hætti. Þessar upplýsingar geta verið:Persónugreinanlegar upplýsingar – nafn, heimilisfang, netfang, kennitala, símanúmer o.s.frv.
Greiðsluupplýsingar – greiðslukortaupplýsingar
Upplýsingar sem við söfnum um þig
Þegar þú nýtir þér þjónustu okkar (t.d. þegar þú kaupir bílastæðaþjónustu af okkur eða færð tilkynningar um flug í gegnum samfélagsmiðla) þá getur verið að við söfnum eftirfarandi upplýsingum:Persónugreinanlegar upplýsingar – t.d. nafn, netfang og símanúmer
Upplýsingar um vöru eða þjónustu – upplýsingar um þá vöru eða þjónustu sem þú kaupir af okkur
Fjárhagsupplýsingar – t.d. upplýsingar um það ef greiðslukortið þitt er lokað
Viðskiptasaga – upplýsingar um kaup, greiðslur og greiðslukortasamþykki vegna fyrri kaupa
Upplýsingar um samskipti þín við Isavia – Upplýsingar um samskipti þín við Isavia gegnum heimasíðu félagsins, tilkynning um flugáætlun og ábendingar
Upplýsingar um tæki – IP-tala, tungumálastillingar, vafrastillingar, tímabeltisstillingar o.fl.
Landfræðilegar upplýsingar – landfræðileg staðsetning
Starfsumsóknir - umsækjendur um störf hjá Isavia og dótturfélögum
Þær upplýsingar sem þú lætur okkur í té auk upplýsinga um vöru eða þjónustu og fjárhagsuppýsingar eru nauðsynlegar til þess að við getum efnt okkar samningsskyldur gagnvart þér (veitt umbeðna þjónustu). Tilgangur söfnunar annarra upplýsinga er skýrður hér á eftir.
Fótspor
Nafn
Tilgangur
Google Analytics
_ga
_gat
_gid
Fótspor sem notuð eru til að safna upplýsingum um hvernig vefsíðan er notuð. Við notum upplýsingarnar við skýrslugerð í þeim tilgangi að gera síðuna notendavænni. Fótsporin safna upplýsingunum með dulkóðun, sem dæmi fjöldi notenda síðunnar, hvaðan notendur koma og hvaða síður á vefsíðunni það heimsótti.
Lestu upplýsingar um persónuvernd og utanumhald gagna hjá Google.
Stillingar.is
userstyles
Fótspor sem notuð eru til að stilla sem best aðgengi að vefnum fyrir notendur með lestrarerfiðleika, t.d. vegna lesblindu eða sjónskerðingar.
Siteimprove
siteimproveses
nmstat
sz_notrack
Fótspor notað til að halda utan um gæði efnis á vefnum. Meiri upplýsingar um hvernig Siteimprove safnar gögnum.
Facebook Advertising
fr
_fbp
Fótspor sem notuð eru til að birta auglýsingar Isavia til notenda á Facebook sem hafa heimsótt isavia.is. Sjá frekari upplýsingar um hvernig Facebook safnar gögnum.
Það að leyfa fótspor er ekki alltaf nauðsynlegt fyrir vefsíðuna og grundvallar virkni hennar. Samt sem áður, með því að leyfa þau getum við bætt upplifun þína á síðunni. Þú getur eytt út eða lokað á þessi fótspor, en með því mun ákveðin virkni eða þættir á síðunni ekki virka sem skyldi. Með því að smella á "Leyfa fótspor" á borðanum sem birtist neðst á síðunni, samþykkir þú notkun fótspora. Þú getur breytt stillingum og afturkallað samþykki þitt með því að ýta á tannhjólið í vinstra horni síðunnar.
Allar þær upplýsingar sem Isavia safnar eru nýttar til þess að framkvæma og bæta þjónustu fyrirtækisins við viðskiptavini. Þannig söfnum við þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að efna samningssamband eða til að svara fyrirspurnum þínum.
Isavia miðlar ekki persónuupplýsingum til óviðkomandi aðila. Í sumum tilfellum er upplýsingum miðlað sé svo nauðsynlegt vegna tiltekinnar vinnslu upplýsinganna og þá einungis í þeim tilgangi sem tilgreindur er.
Isavia varðveitir þínar persónuupplýsingar með öruggum hætti samkvæmt persónuverndarreglum og verklagi sem á við hverju sinni.
Það er mismunandi hversu lengi við geymum upplýsingarnar. Isavia fellur undir lög nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn og öll mál sem varðveita skal samkvæmt þeim eru geymd í 30 ár og að því loknu færð til Þjóðskjalasafns Íslands. Þetta á t.d. við um beiðnir um fyrirspurnir á grundvelli upplýsingalaga og fyrirspurnir sem berast gegnum „hafðu samband“ form á vefnum . Önnur gögn er innihalda persónuupplýsingar eru einungis geymd í þann tíma sem nauðsynlegt er og að þeim tíma loknum er þeim eytt í samræmi við verklag Isavia þar um.
Við erum ábyrgðaraðilar rafrænnar vöktunar sem viðhefst með eftirlitsmyndavélum í flugstöðinni.
Megintilgangur rafrænnar vöktunar er öryggi, eignavarsla og flugvernd. Myndefni sem til verður kann þó einnig að vera nýtt til að hafa eftirlit með nýtingu mannvirkja og vegna þróunar og breytinga á þeim. Þá kann myndefni einnig að vera nýtt við þjálfun starfsfólks. Þegar myndefni er nýtt til annars en öryggis, eignavörslu og flugverndar er leitast við að einstaklingar séu ekki persónugreinanlegir. Heimild okkar til vinnslu persónuupplýsinga sem til verða við rafræna vöktun er lagaskylda sem hvílir á okkur, m.a. vegna flugverndar og hins vegar lögmætir hagsmunir okkar af því að viðhafa öryggis- og eignavörslu, stuðla að þróun flugvallarins, bæta þjónustu og vegna þjálfunar starfsfólks.
Myndefni er aðgengilegt þröngum hópi starfsfólks. Vinnsluaðili kann að fá takmarkaðan aðgang vegna villugreininga og uppfærslna (Dallmeier). Efni með upplýsingum um slys eða refsiverðan verknað getur verið afhent lögreglu. Einnig getur efni verið afhent tryggingafélagi sé það nauðsynlegt vegna tryggingamáls.
Þegar unnið er með myndefni sem verður til við vöktunina má sjá í flestum tilvikum einstaklinga sem farið hafa um hið vaktaða svæði og athafnir þeirra.
Þú átt rétt á að skoða myndefni þar sem hægt er að bera kennsl á þig. Einnig áttu rétt á að fá afrit af slíku myndefni að því gefnu að það skerði ekki réttindi og frelsi annarra.
Efnið er varðveitt í 30 daga nema í afmörkuðum tilvikum þegar lög heimila lengri varðveislutíma.
Bent er á að aðrir rekstraraðilar á flugvellinum kunna einnig að viðhafa rafræna vöktun í sinni starfsemi. Rafræn vöktun þeirra er ekki á okkar ábyrgð.
Þú átt rétt á að fá upplýsingar um hvort unnar séu persónuupplýsingar um þig og, ef svo er, aðgang að þeim persónuupplýsingum sem við varðveitum um þig, ásamt upplýsingum um vinnsluna samkvæmt persónuverndarlögunum. Þú getur einnig, í einhverjum tilvikum, átt rétt á því að:
Draga samþykki þitt til baka
Láta leiðrétta persónuupplýsingar
Fá persónuupplýsingar þínar eyddar
Andmæla vinnslu persónuupplýsinga
Takmarka vinnslu persónuupplýsinga
Flytja persónuupplýsingar til þriðja aðila
Óskir þú eftir aðgangi að persónuupplýsingum þínum sem eru í vinnslu hjá Isavia eða dótturfélögum þarftu að skrá þig inn með rafrænum skilríkjum hér í auðkenningargátt og fylla inn beiðni um mínar persónuupplýsingar. Smelltu hér til að skrá þig inn.
Við fylgjum lögum um opinber skjalasöfn og erum óheimilt að breyta eða eyða gögnum sem varðveitast samkvæmt lögunum nema að fengnu leyfi Þjóðskjalasafns Íslands. Einstaklingar geta þó átt rétt á að gögn verði leiðrétt og að athugasemdir séu geymdar með þeim.
Þú átt einnig rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd vegna meðferðar á persónuupplýsingum þínum. Ef ágreiningur kemur upp um meðferð persónuupplýsinga geturðu sent kvörtun til Persónuverndar. Nánari upplýsingar má finna á personuvernd.is.