Ertu að skutla á flugvöllinn?
Ef þú ert að skutla á flugvöllinn er þægilegt að nota rennuna við brottfararinnganginn. Þar keyrir þú inn, hleypir farþegunum út og keyrir svo beint út aftur.
Í rennunni færðu 5 gjaldfrjálsar mínútur til að knúsa bless og kveðja. Að þeim tíma liðnum hefst gjaldtaka samkvæmt verðskrá sem miðast við tíma innaksturs.
Ef þú vilt aðeins lengri tíma í kveðjustundina er hægt að nota P1 stæðin okkar en þar er frítt að leggja fyrstu 15 mínúturnar. Ef þú vilt ennþá meiri tíma getur þú notað P2 stæðin okkar en þar er frítt að leggja í hálftíma.

